Tónlistarlíf Hornfirðinga á glæsilega framtíð
Það var mikið um að vera í Mánagarði í gær þegar Nesja- og Hafnarskóli héldu sameiginlega árshátíð í lok þemaviku. Á árshátíðinni mátti sjá afrakstur vinnu nemenda, en þema vikunnar voru umhverfismál og yfirskriftin var “Sóðar og slóðar erum við ekki” Út um allan Mánagarð mátti sjá vinnu nemenda og kenndi þar margra grasa. Skemmtidagskrá nemenda var einkar glæsileg þar sem hvert tónlistaratriðið rak annað ásamt öðrum skemmtiatriðum. Flutningur krakkanna og framkoma var til mikillar fyrirmyndar og greinilegt að tónlistarlíf Hornfirðinga á glæsilega framtíð fyrir sér. Að lokum var svo slegið upp balli og var ekki annað að sjá en að allir skemmtu sér konunglega.
Vonandi verður áframhald á þessu samstarfi skólanna enda augljóst að allir sem komu að þessari skemmtun höfðu bæði gagn og gaman af.
Krakkar takk fyrir skemmtunina, þið voruð stórkostleg.





Skrifa athugasemd