Mars
Fermingabörn næstu ára
Fermingabörn næstu ára

26.03.2004 Mars

Fjörutíu fermingarbörn

Fermingarbörn í Sveitarfélaginu Hornafirði á þessu vori eru fjörutíu. Fyrsta fermingin verður 4. apríl, Pálmasunnudag, í Hafnarkirkju og sú síðast verður 31.maí, annan dag Hvítasunnu. Fermingardagarnir verða 13 í sex kirkjum í sýslunni.
Margar fjölskyldur fá veitingahúsin á staðnum til að sjá um matinn í fermingarveisluna og losna þannig við mikið umstang. Hjá þeim á Hótel Höfn fengust þær upplýsingar að búið væri að panta níu matarveislur, sumar yrðu á hótelinu aðrar úti í bæ. Algengustu pantanir hjá hótelinu eru fyrir 60 til 80 manns en fer upp í 150.

Til gamans skulum við kanna hvaða mat er boðið upp á. Hótel Höfn býður upp á hefðbundnar steikur, laxa og humarrétti, einnig smárétti og þar á bæ eru steikurnar vinsælastar. Verð á veislukostinum er um 2.000 kr. á mann.
Búið er að að panta átta matarveislur hjá Kaffi Horninu þar af verða tvær úti í bæ. Þar eru pantanir algengastar fyrir 50 til 110 manns. Hér eru smáréttir allskonar vinsælastir segir Ingólfur Einarsson á Kaffi Horninu, aðeins einn hefur pantað steik svona upp á gamla mátann þ.e reykt svín, rostbeef, kjúkling o.fl.
Fimmtíu manna matarveisla í umsjá Kaffi Hornsins kostar 80-100 þúsund kr. fer eftir því hvað mikið er í hana lagt.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica