Alltaf nóg við að vera
Hornfirðingar þurfa ekki að láta sér leiðast þessa helgina því nóg er um að vera í menningarlífinu. Á föstudagskvöld mun Harmoníkufélag Hornafjarðar standa fyrir harmoníkuhátíð á Víkinni. Gestur kvöldsins verður Grétar Geirsson harmoníkuleikari. Að lokinni skemmtuninni verður síðan stigin dans fram eftir nóttu. Á laugardaginn mun Þorsteinn Guðmundsson verða með uppistandssýningu á Hótel Höfn. Sýninguna kallar hann FÚTT og er hún sambland af hefðbundnu uppistandi og leikþáttum á myndbandi. Á laugardaginn verða Blues tónleikar í Nýheimum þar sem Glenn Kaiser, blues gítarleikari frá Bandaríkjunum mun skemmta gestum, en Glenn er vel þekktur í sínu heimalandi.
Þegar Hornfirðingar eru búnir að jafna sig þokkalega eftir viðburði helgarinnar er ekki úr vegi að skella sér á vortónleika Samkórsins sem verða í Hafnarkirkju á þriðjudaginn.





Skrifa athugasemd