Árshátíð Hafnar- og Nesjaskóla
Foreldrum, systkinum og öllum Hornfirðingum er boðið á Árshátíð Hafnar- og Nesjaskóla. Árshátíðin verður haldin í dag fimmtudaginn 25. mars kl 17:00-19:00 í Mánagarði. Þar kemur fram afrakstur þemavinnu liðinnar viku þar sem umhverfismál hafa verið á oddinum, seldir verða umhverfisvænir pokar, sýnd verða hús sem 1. og 6. bekkur hafa verið að vinna við, slide show sem 7. bekkur hefur verið að vinna við, og margt fleira. Einnig verða skemmtiatriði sem nemendur skólanna munu sýna. Þar verður selt kaffi, gos, safi og eitthvað gott í gogginn og mun ágóðinn renna til Hafnar- og Nesjaskóla til að kaupa spil og bolta handa nemendum skólanna.
Við hvetjum alla til að mæta og sjá afrakstur liðinnar viku.
Frétt unnin af nemendum í 7. bekk





Skrifa athugasemd