Vantar greiðfæra leið út á Suðurfjörur
Aðgengi að Suðurfjörum er enn að mestu lokað eftir að Hólmsá braut sér leið til sjávar við Skinneyjarhöfða í stórflóðunum fyrir tæpum tveim árum. Helgi Már Pálsson bæjarverkfræðingur fór í síðustu viku að skoða aðstæður og segir hann að hægt sé að komast út á fjörur hjá Borg þ.e með leyfi landeiganda og eftir hans leiðsögn. Helgi telur að líklegasta leiðin fyrir veg út á Suðurfjörur sé rétt austan við Hólmsá og þar niður með ánni en það sé dýr vegagerð. Ekki er ljóst hvenær sú framkvæmd getur orðið þar sem engin fjárveiting er til.
Helgi segir að miklar breytingar séu orðnar við ósinn sem á sínum tíma var grafið fyrir í landi Flateyjar við fjörurnar þar er komið mikið vatnsrennsli sem lokar leiðinni frá veginum út á sandinn vestan Hólmsá og segir Helgi það næsta ljóst að þar sé aðgerðar þörf.
Við teljum þetta mjög alvarlegt ástand að ekki skuli vera greiðfær leið út á Suðurfjörur segir Björn Ingi Jónsson formaður Björgunarfélagsins.,, Í bréfi til Bæjarráðs fyrir rúmu ári vakti Björgunarfélagið athygli á því alvarlega ástandi sem skapaðist með lokun leiðarinnar út á fjörur. Ég vil benda á mikilvægi þess að mögulegt sé fyrir Björgunarfélagið að komast út á þessar fjörur hvernig sem viðrar til að hægt sé að bregðast skjótt og vel við verði slys við eða í innsiglingunni til Hafnar og einnig á strandlengjunni vestan við Ósinn. Þetta aðgengi er gífurlega mikilvægt og hægt þarf að vera að fara með öll þau tæki og tól út á fjörur sem geta hjálpað til við að bjarga mannslífum og þetta ástand sem verið hefur hátt á annað ár er með öllu óviðunandi og ekki ásættanlegt fyrir nokkurn þann sem að tengist björgunarmálum hér á svæðinu” segir Björn Ingi..





Skrifa athugasemd