Hornfirsk blómarós í Ungfrú Austurland
Fegurðarsamkeppni Austurlands verður haldin í Egilsbúð Neskaupstað n.k. laugardag og er þetta í fimmtánda sinn sem keppnin er haldin. Fulltrúi Hornafjarðar í keppninni er Lilja Rós Aðalsteinsdóttir. Foreldrar hennar eru Aðalsteinn Aðalsteinsson og Elísabet Þorgerður Einarsdóttir. Lilja Rós er 22 ára gömul og nemur sálfræði við Háskólann á Akureyri og er þar á fyrsta ári. Einn af þeim titlum sem í boði er fyrir þær sjö stúlkur sem þátt taka í Fegurðarsamkeppni Austurlands er Netstúlka Símans og er kosning hafin.
Hægt er að kjósa Netstúlku Símans með því að smella hér.
Ekkert er til sparað til að gera keppnina sem glæsilegasta og má nefna að boðið verður uppá þríréttaða veislumáltíð, Andrea Gylfa kemur fram ásamt Eðvarði Lárussyni, sigurvegarar úr söngvakeppnum ME og VA skemmta, boðið verður uppá tískusýningu og kynnir kvöldsins verður Rokklandskóngurinn Óli Palli. Hljómsveitin Súellen mun síðan sjá til þess að allir skemmti sér á dansleik frameftir nóttu.





Skrifa athugasemd