Mars
Þemavika í fullum gangi
Þemavika í fullum gangi

23.03.2004 Mars

Frétt frá 7. bekk, Hafnarskóla í opinni viku

Nú er í gangi sameiginleg opin vika í Hafnar- og Nesjaskóla undir yfirskriftinni “Sóðar og slóðar erum við ekki”. Þema vikunnar er umhverfistengt og markmiðið að nemendur og starfsfólk verði meðvitaðri um umhverfi sitt og umgengni við náttúruauðlindir jarðarinnar. Í þessari vinnu skólanna er blandað nemendum sem mest saman. Gengið er út frá því að eldri nemendur aðstoði þá yngri. 1. og 6. bekkur mynda einn vinnuhóp, 2. og 4. bekkur annan, 3. og 5. bekkur þann þriðja en 7. bekkur sér um almannatengsl.

Þórgunnur Torfadóttir segist starfa sem manneskja sem að kennir litlum barna-gríslingum og hlær, en í raun starfar hún sem aðstoðarskólastjóri í Hafnarskóla. Nokkrir nemendur í 7. bekk tóku viðtal við hana á skrifstofu hennar.
Hún segir að þetta verkefni gangi út á það að vekja okkur til umhugsunar um umhverfi okkar og að ganga betur um það. Í þessu verkefni taka 7 árgangar þátt, 1. til 7. bekkur. Þetta verkefni kallast “Sóðar og slóðar erum við ekki”. Þórgunnur segir að markmið þemadaga sé að auka þekkingu nemanda og gera þá færari og betri með því að læra í gegnum leik. Þórgunnur segist venjulega ekki flokka ruslið sitt en passar sig samt á því að setja ekkert skaðlegt með hinu ruslinu.

Krakkarnir í 1. og 6.bekk eru að vinna við sorp og skynsamleg innkaup til að draga úr rusli. Krökkunum finnst þetta mjög mikið fjör. Í dag hefur 6. bekkur verið að velta því fyrir sér hvernig þau geta gert jörðina að betri jörð. Þau eru líka að búa til hús og fólk sem lenti í þeim hremmingum að lokast inn í húsi sínu út af rusli. Hafsteinn sem er kennari þar hefur hingað til sýnt fína fyrirmynd fyrir krakkana, hann hendir litlu rusli og hendir aldrei neinu á göturnar en þegar hann er með tyggjó REYNIR hann að henda því í ruslið en hann flokkar ekki ruslið sitt.

Í 2. og 4. bekk er viðfangsefnið samgöngur, ósonlagið, að ganga meira og nota bílinn minna. Markmið 2. og 4. bekkjar er umhverfið og að láta krakkana fá meiri áhuga á umhverfinu. Í dag hafa þau verið að mála kort af Hornafirði. Krakkarnir hafa verið mjög áhugasamir. Brynju sem er einn af kennurunum, finnst mjög gaman að hitta krakka og kennara úr öðrum skólum. Brynja er ekki eins góð fyrirmynd og Herdís því að hún flokkar eingöngu flöskur og dósir en það er alltaf byrjunin.

Í 3. og 5. bekk er viðfangsefnið vatn og orka. Markmið 3. og 5. bekkjar er að krakkarnir viti meira um vatnið á jörðinni og orkuna. Í dag fóru nemendurnir að skoða vatnsból Hafnar og Nesja og vatnstankinn. Þessi opna vika er mjög áhugaverð og krakkarnir eru einnig nokkuð áhugasamir. Herdís sem er einn af kennurunum er mjög góð fyrirmynd fyrir okkur því hún flokkar sorpið heima hjá sér.

7. bekkurinn sér um almannatengsl. Í því felst að vekja athygli samfélagsins á verkefninu í heild sinni og koma upplýsingum hinna hópanna til skila meðan á vinnu stendur. Það mun verða gert m.a. með því að útbúa upplýsinga- / leiðbeiningaspjöld, útbúa efni fyrir fjölmiðla s.s. Skjávarpið og Eystrahorn og útgáfa upplýsingabæklings. Krökkunum finnst mjög gaman að vinna að þessu verkefnum.

Elín Sigríður er myndmenntakennari í Hafnarskóla. Hún er góð fyrirmynd fyrir annað fólk því að hún flokkar allt rusl, flöskur, batterí, lífrænt ræktað, kertavax og margt fleira. Hún hendir einu kílói á dag af rusli og hendir aldrei neinu rusli eða tyggjói á göturnar.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica