Sóðar og slóðar erum við ekki
Í dag hefst sameiginleg opin vika Hafnar- og Nesjaskóla. Yfirskrift vikunnar er “Sóðar og slóðar erum við ekki” Þema vikunnar er umhverfistengt og markmiðið að nemendur og starfsfólk verði meðvitaðri um umhverfi sitt og umgengni við náttúruauðlindir jarðarinnar. Mikil vinna hefur verið lögð í undirbúning fyrir þessa daga af starfsfólki skólanna til að allt megi ganga sem best fyrir sig.
Gengið er út frá hugmyndinni um vinabekki en einnig því að eldri nemendur aðstoði þá yngri. 1. og 6. bekkur mynda vinnuhóp, 2. og 4. bekkur annan, 3. og 5. bekkur þann þriðja en 7. bekkur sér um almannatengsl. Áhersla er lögð á að blanda nemendum sem mest saman og verður því ferðast á milli skólanna eftir því sem þarf.
Á fimmtudaginn kl. 17:00 – 19:00 er síðan öllum Hornfirðingum boðið á árshátíð skólanna í Mánagarði. Þar verður sýndur afrakstur opinnar viku. Hægt verður að kaupa veitingar og mun ágóðinn af þeirri sölu renna til kaupa á spilum og boltum handa nemendum skólanna. Árshátíðinni líkur síðan með dansleik.





Skrifa athugasemd