Mars
Félagar í Harmoníkufélagi Hornafjarðar í Pakkhúsinu
Félagar í Harmoníkufélagi Hornafjarðar í Pakkhúsinu
Félagar í Harmoníkufélagi Hornafjarðar í Pakkhúsinu (úr myndasafni)

22.03.2004 Mars

Harmoníkuhátíð á Víkinni

Á föstudagskvöldið mun Harmoníkufélag Hornafjarðar standa fyrir harmoníkuhátíð og dansleik á veitingastaðnum Víkinni. Þetta er í tíunda skipti sem félagið stendur fyrir harmoníkuhátíð og hefur hún verið mjög vel sótt í gegnum tíðina. Allt frá upphafi hefur félagið boðið harmoníkuleikara utan Hornafjarðar á hátíðina og að þessu sinni er hátíðargesturinn Grétar Geirsson harmoníkuleikari og bóndi á Áshól við Hellu, en hann hefur kennt á harmoníku í sinni heimasveit og er vel þekktur spilari á Suðurlandi.

Grétar mun skemmta gestum með harmoníkuleik og einnig munu félagar í Harmoníkufélagi Hornafjarðar leika ásamt hljómsveit. Hátíðinni líkur síðan með dansleik þar sem boðið verður upp á gömludansana eins og þeir gerast bestir.
Hátíðin er öllum opin og ættu þeir sem hafa gaman af harmoníkutónlist og gömlu dönsunum ekki að láta happ úr hendi sleppa. Félagar í Harmoníkufélagi Hornafjarðar eru 26.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica