Ásmundur kveður eftir 10 ára starf sem formaður
Aðalfundur Ferðamálafélags Austur Skaftafellssýslu var haldinn á Hótel Höfn s.l. fimmtudag. Mikil gróska er í ferðaþjónustu í Sveitarfélaginu og fer vaxandi. Ásmundur Gíslason sem hefur starfað ötullega að ferðamálum og verið formaður Ferðamálafélagsins síðust 10 árin gaf ekki kost á sér í stjórn að þessu sinni. Í hans stað var Guðrún Ingimundardóttir kosin formaður og með henni í stjórn Sigurlaug Gissurardóttir, Bjarni Skarphéðinn Bjarnason, Sigrún Kapitóla Guðrúnardóttir og Gísli Már Vilhjálmsson. Ásmundur flutti skýrslu stjórnar þar sem farið var vítt og breitt yfir starfsemi félagsins á síðast ári.
Í lok ræðu sinnar þá sagði Ásmundur að þessi ár sem hann hefði starfað sem formaður hafi verið viðburðarík og skemmtileg og miðað við aðstæður þá teldi hann starfsemi Ferðamálafélagsins hafa verið öflug þessi ár. Hann tók sérstaklega fram að í raun hafi verið mikil samstaða meðal félagsmanna um helstu hagsmunamál atvinnugreinarinnar í gegnum árin og kemur það m. a. fram í mikilli og almennri þátttöku í þeim útgáfuverkefnum sem ferðamálasamtökin réðust í á þessum tíma. Í ræðu sinni sagði Ámundur einnig að ferðaþjónusta í Austur Skaftafellssýslu væri vönduð bæði að ytri umgjörð sem og þjónusta við ferðamennina sjálfa. Lauk hann orðum sínum á að segja að við nytum þeirra forréttinda að búa við helstu perlur íslenskrar náttúru og yfir sumartímann er eftirspurn eftir dvöl í héraðinu meiri en framboðið og framtíðin því björt í ferðaþjónustu í Austur Skaftafellssýslu.
Ásmundi var afhent gjöf í lok fundarins þar sem honum var þakkað fyrir vel unnin störf í þágu Ferðamálafélagsins.





Skrifa athugasemd