Mars
Hvanney
Hvanney SF51 við bryggju á Höfn

19.03.2004 Mars

Humarveiði hafin hjá Skinney Þinganesi

Þetta byrjar alveg þokkalega sagði Björn Lúðvík Jónsson skipstjóri, við komum með 1100 kg af slitnum humri, það er svipað og var í byrjun vertíðar í fyrra. Vandamálið er að það er allt fullt af fiski á þessum slóðum, verðlausri ýsu, og þá er verra að ná humrinum.Besti veiðitími fyrir humar segir Lúðvík vera í janúar – febrúar, þá er ekki fiskur á þessum slóðum en þá má ekki veiða hann. Humarinn veiddist við Tvísker og grunnt í Breiðamerkurdýpinu hann er frekar smár og ég held að hann verði það í sumar því það virðist vanta tvo áganga af humri sem væri orðinn stór núna.

Sverrir Aðalsteinsson hjá Skinney Þinganesi sagði í morgun að loðnuveiði væri lokið hjá bátum þeirra því loðnan væri horfin og skipin komin í höfn, en eftir voru ca. þrjár veiðiferðir til að ljúka veiði á loðnukvóta þeirra.
Jóna Eðvalds landaði í nótt 250 tonnum af loðnu og er verið að vinna þann afla. Búið er að verka 140 tonn af loðnuhrognum á vertíðinni.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica