Mars
Hvítasunnukirkjan við Hafnarbrautina
Hvítasunnukirkjan við Hafnarbrautina

19.03.2004 Mars

Átta metra hár kross á Hvítasunnukirkjuna á Höfn

Hvítasunnusöfnuðurinn í Hornafirði keypti húsið Hafnarbraut 59 árið 2002 sem nú er kirkja safnaðarins. Um fimmtán manns eru í söfnuðinum og núverandi leiðendur hans eru Anna Þorsteinsdóttir, Helgi Georgs og Einar Sigurðsson. Upphafsmenn að stofnun Hvítasunnusafnaðar í Hornafirði 1991 eru hjónin Þorsteinn Matthíasson og Helga Örvar og allt þar til söfnuðurinn fékk sína eigin kirkju fór allt safnaðarstarf fram á heimili þeirra Þorsteins og Helgu.
Anna segir að messur séu alla sunnudaga kl. 14.00, þar er sungið, spiluð létt lofgjörð og ljúf lög, fluttar skemmtilegar frásagnir,prédikun og svo fyrirbænir fyrir þá sem vilja og að þessu loknu fáum við okkur kaffi.

Anna bætir við ,,Það eru allir velkomnir í messu til okkar hverrar trúar sem þeir eru.”

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica