Kaffihúsakvöld FAS
Í gær var haldið kaffihúsakvöld á vegum Nemendafélags FAS. Kvöldið var sérlega vel lukkað og mættu um 100 manns. Keppt var í undankeppni fyrir söngvakeppni framhaldsskólanna sem haldin verður 3. apríl. Fimm nemendur FAS höfðu skráð sig í keppnina, en það voru þau Eysteinn Sindri Elvarsson, Ingibjörg Ingvarsdóttir, Ása Björk Þórisdóttir, Sigríður Bára Steinþórsdóttir og Steinunn Hödd Harðardóttir.
Sigurvegari kvöldsins var Eysteinn Sindri sem flutti lag eftir Heru, hann mun því verða fulltrúi skólans í lokakeppninni. Að lokinni söngkeppninni var V-dagurinn kynntur en hann var einmitt í gær. V-dagurinn er ætlaður til að vekja fólk til umhugsunar um kynferðisofbeldi.
Ýmislegt fleira var í boði á kaffihúsakvöldi FAS t.d. var keppt í kynþokka, eggjagöngu, kappáti og einnig flutti sigurvegari söngvakeppninnar, Eysteinn Sindri eigin lög og vakti mikla lukku. Þetta kemur m.a. fram á vef skólans www.fas.is





Skrifa athugasemd