Mars
Óvanaleg sjón um miðjan mars, tjald á tjaldstæðinu
Óvanaleg sjón um miðjan mars, tjald á tjaldstæðinu

18.03.2004 Mars

Kólnandi veður

Þá er sumarblíðan sem leikið hefur við Hornfirðinga undanfarið horfin á braut og vetur konungur farinn að reyna að minna á sig. Veðurspáin til kl. 18:00 á morgun gerir ráð fyrir austan og norðaustan 10-15 m/s og rigning, en 13-18 m/s með ströndinni. Norðaustan 5-10 m/s og stöku skúrir í kvöld og á morgun, einkum austantil. Hiti 1 til 6 stig. Klukkan 12 á hádegi var NNA 11 m/s og tveggja stiga hiti í Akurnesi.

Í sjálfvirku veður stöðinni í Hvanney var ANA 12 m/s og hiti við frostmark. Veðurhorfur næstu daga á landinu: Á laugardag, sunnudag og mánudag norðlæg átt og él, en bjartviðri með köflum sunnantil. Frost yfirleitt 0 til 8 stig, en frostlaust syðst að deginum. Hægviðri á sunnudag og él norðaustantil, en vaxandi suðlæg átt og þykknar upp síðdegis með hlýnandi veðri.
Sumarfæri er með suðurströndinni en töluverður vindur er bæði á Mýrdalssandi og í Öræfasveit. Í Öræfasveit voru NA 18 m/s og fór í hviðum yfir 30 m/s kl. 13:00 og á Mýrdalssandi voru A 13 m/s og fór í hviðum upp í 22 m/s.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica