Jarðstrengur lagður að Almannaskarðsgöngum
RARIK hefur hafið lagningu 8 km. jarðstrengs til að flytja þriggja fasa rafmagn frá aðveitustöðinni Hólum að væntanlegum gangnamunna í Almannaskarði með viðkomu í Haga. Verktaki við lagningu strengsins er verktakafyrirtækið Ljósvirki frá Reykjavík en eftirlitsaðili er RARIK á Hornafirði sem einnig sér um tengingar á strengnum og uppsetningu á spennistöðinni við göngin.
Ástvaldur Anton Erlingsson hjá RARIK á Egilsstöðum segir að áætlað sé að bæir á þessu svæði verði tengdir með þriggja fasa rafmagni fasa í stað einfasa rafmagns sem þeir hafa í dag. Stauralínan sem nú flytur rafmagn á þetta svæði verður fjarlægð og milli-spennistöð sem nú er við Dynjanda verður flutt og komið fyrir Lón megin við Almannaskarð. Með lagningu í jörð eykst rekstraröryggið á þessu svæði því línan liggur illa fyrir ísingar áttum og hefur 2-3 sinnum bilað illa í vondum veðrum. Lagður verður strengur í gegnum Almannaskarðsgöngin þannig að þá verður einnig komið þriggja fasa rafmagn Lónmegin. Ástvaldur segir að ekki séu komnar neinar áætlanir um frekari lagningu þriggja fasa rafmagns á bæi í Lóni .





Skrifa athugasemd