Mars
Frá sjávarsíðunni
Nú er heldur rólegt að verða yfir loðnumiðunum en flotinn er við veiðar í Faxaflóa. Bæði Jóna Eðvalds og Ásgrímur Halldórsson eru í Faxaflóa og var Jóna Eðvalds komin með um 250 tonn í morgun. Hjá Skinney-Þinganes eru menn langt komnir með að klára loðnukvóta fyrirtækisins, einungis eftir rúm 2.000 tonn.
Samkvæmt upplýsingum frá Samtökum fiskvinnslustöðva eru nú óveidd um 200.000 tonn af loðnu. Mestri loðnu hefur verið landað á Eskifirði eða rúmlega 61.000 tonnum.
Vertíðarbátar á Hornafirði voru að fá um og yfir 10 tonn hver í gær og færabátar voru að fá þetta frá 400 kg. og upp í 1.600 kg.





Skrifa athugasemd