Austurlandsmót í fimleikum
Á laugardaginn verður haldið austurlandsmót í fimleikum í íþróttahúsinu á Höfn. Þetta er í annað skiptið sem austurlandsmót er haldið, en á síðasta ári var mótið haldið á Egilsstöðum. Fimleikadeild Sindra náði mjög góðum árangri á mótinu á síðasta ári og vonandi verður árangurinn ekki síðri á heimavelli.
Reiknað er með að mótið verði í framtíðinni til skiptis á Egilsstöðum og Hornafirði, en það eru aðeins Höttur og Sindri sem senda lið til keppni. Þátttakendur verða um 90 þar af 35 frá Sindra. Yngstu keppendurnir eru 10 ára en elsti keppandinn kemur frá Hetti og er 17 ára. Glæsileg þjálfara sýning sem engin má missa af verður í lok móts.
Bæði fimleikadeild Sindra og Hattar áttu keppendur á íslandsmótinu í fimleikum sem haldið var í febrúar og hömpuðu bæði lið þar titlum. Mótið hefst kl. 12:00 á laugardaginn og er aðgangseyrir kr. 200 en frítt er fyrir börn 6 ára og yngri. Foreldraráð fimleikadeildar Sindra verður með kaffisölu á svæðinu.





Skrifa athugasemd