Mars
Eystrahorn séð frá réttu sjónarhorni

16.03.2004 Mars

Ófreskjan kvikmynduð

Á undanförnum misserum hefur verið unnið að undirbúningi að gerð kvikmyndar byggða á Bjólfskviðu. Gert er ráð fyrir að myndin verði að mestu tekin í Austur-Skaftafellssýslu. Myndin gengur undir nafninu ?Beowulf & Grendel?. Bjólfskviða fjallar um ævintýri þar sem koma við sögu kóngar og hetjur, forynjur og tröll. Hér er sem sagt um að ræða ekta ævintýramynd sem verður að einhverju leyti í anda Hringadrottinssögu, þó að sjálfsögðu ekki í sama skala þar sem fjármagn verður mun minna.

Búið er að fullgera handrit sem fagmenn telja mjög gott. Kvikmyndin er byggð á ensku ljóði frá 9. öld þar sem segir frá baráttu manns við ófreskju sem hann fellir og móður ófreskjunnar.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica