Mars
Skrímslið gengur á land
Skrímslið gengur á land

16.03.2004 Mars

Kvikmynd byggð á Bjólfskviðu tekin í Austur-Skaftafellssýslu

Á undanförnum misserum hefur verið unnið að undirbúningi að gerð kvikmyndar byggða á Bjólfskviðu. Gert er ráð fyrir að myndin verði að mestu tekin í Austur-Skaftafellssýslu. Myndin gengur undir nafninu “Beowulf & Grendel”. Bjólfskviða fjallar um ævintýri þar sem koma við sögu kóngar og hetjur, forynjur og tröll. Hér er sem sagt um að ræða ekta ævintýramynd sem verður að einhverju leyti í anda Hringadrottinssögu, þó að sjálfsögðu ekki í sama skala þar sem fjármagn verður mun minna.

Búið er að fullgera handrit sem fagmenn telja mjög gott. Kvikmyndin er byggð á ensku ljóði frá 9. öld þar sem segir frá baráttu manns við ófreskju sem hann fellir og móður ófreskjunnar.
Leikstjóri myndarinnar verður Sturla Gunnarsson. Sturla er fæddur á Íslandi af íslenskum foreldrum en ólst upp í Vancouver í Kanada. Hann er mjög virtur leikstjóri í Kanada og hafa bíómyndir hans, fræðslumyndir og sjónvarpsþættir unnið til fjölda verðlauna og hefur hann m.a. verið tilnefndur til óskarsverðlauna. Síðasta bíómynd hans var Rare Birds (2001) með óskarsverðlaunahafanum William Hurt í aðalhlutverki. Sú mynd fékk mjög góða dóma og vann til margra verðlauna.

Ekki er endanlega ákveðið hvenær byrjað verður á myndatökum en það skýrist á næstu vikum. Kvikmyndun verður í höndum Friðriks Þórs Friðrikssonar.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica