Mars
Þjónustumiðstöðin í Skaftafelli
Þjónustumiðstöðin í Skaftafelli

16.03.2004 Mars

Stella Hrönn ráðin í stöðu sérfræðings við Þjóðgarðinn í Skaftafelli

Búið er að ráða Stellu Hrönn Jóhannsdóttir úr hópi 21.umsækjanda í stöðu sérfræðings við Þjóðgarðinn í Skaftafelli. Stella Hrönn er ferðamálafræðingur sem verður þrítug í vor og eiginmaður hennar er Hornfirðingurinn Karl Guðmundsson, Svavarssonar. Stella Hrönn kemur til starfa í Skaftafell um miðjan apríl n.k. Fyrstu skólahóparnir á vorinu koma í Skaftafell í næstu viku, það eru fimmtíu nemendur Verslunarskólans sem heimsækja gestastofu og fara einnig að skoða jökulminjar.

Síðan eru margir hópar búnir að boða komu sína og fyrstir eru  þar austurrískir verslunarskólanemar. Ragnar Frank þjóðgarðsvörður segir að það verði mikið að gera og mörgu að sinna í þjóðgarðinum fram að hinni venjulegu sumartraffik.
Enginn hefur sótt um eða sýnt áhuga á verslunar og veitingarekstrinum í Skaftafelli sem auglýstur var fyrir nokkru. Ragnar segir það mikinn höfuðverk sem finna þurfi lausn á. Það eru mörg verkefni hér í Skaftafelli sem ljúka þarf fyrir sumarið og er þar efst á lista að endurnýja snyrtiaðstöðuna. Núna er verið að koma starfsmannahúsinu undir Brekku í gagnið eftir miklar endurbætur og stækka þarf sumarhúsið þar sem Stella Hrönn verður til húsa.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica