RKÍ á Hornafirði gefur hjartastuðtæki
Rauðakrossdeildin á Hornafirði afhenti í dag sýslumannsembættinu á Höfn hjartastuðtæki til að hafa í lögreglubílnum. Þetta eru tæki sem notuð eru ef hjartastopp verður. Tækin eru alsjálfvirk og ekki þarf neina sérkunnáttu til að nota þau, það getur hver sem er gripið þau og notað þau til hjálpar. En undir þeim kringumstæðum að hjartastopp verði er hver sekúnda dýrmæt.
Þessi tæki eru komin í nær alla sjúkrabíla og verið er að koma þeim upp á fjölförnum stöðum og í stofnunum þar sem hægt er að grípa til þeirra ef þarf segir Sigurður Kr. Sigurðsson.
Rauðakrossdeildin á Hornafirði er vel virk og sinnir ýmsum verkefnum á svæðinu og má þar nefna að í haust gaf deildin öllum nemendum í 10. bekk skyndihjálparnámskeið og svo verður framvegis að 10. bekkingar fá slík námskeið í byrjun skólaárs. Deildin sér um almenn skyndihjálparnámsskeið og unnið er að málefnum geðfatlaðra á austurlandi o.m.fl. Formaður Rauðakrossdeildarinnar er Ásgerður Gylfadóttir og gjaldkeri er Sigurður Kr. Sigurðsson.





Skrifa athugasemd