Mars
Þéttir rokkarar í Skítúr
Þéttir rokkarar í Skítúr

15.03.2004 Mars

Endurteknir rokktónleikar

Á laugardaginn voru haldnir rokktónleikar af bestu gerð í Þrykkjunni, félagsmiðstöð unglinga á Hornafirði. Þrjár ungar, efnilegar og kraftmiklar hljómsveitir stigu þá á stokk og rokkuðu af öllum lífs og sálar kröftum. Mjög góð mæting var á tónleikana eða yfir 70 manns. Tónleika gestir voru mjög ánægðir með tónleikana og gaman að heyra hversu vel tónleikarnir voru skipulagðir og hversu mikinn metnað hinir ungu listamenn höfðu lagt í þá.

Í dag kl. 17:00 á síðan að endurtaka tónleikana fyrir nemendur í 6. og 7. bekk og aðra þá sem gaman hafa af góðu rokki. Það eru hljómsveitirnar Cock Robin, Skítúr og Fiction sem koma fram á tónleikunum og eru þær skipaðar tónlistarmönnum á aldrinum 14 – 20 ára.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica