Mars
Skeiðarárbrú (úr myndasafni mars 2004)
Skeiðarárbrú (úr myndasafni mars 2004)
Skeiðarárbrú (úr myndasafni mars 2004)

30.03.2004 Mars

30 ár frá opnun hringvegarins

Í sumar eru merk tímamót í sögu samgöngumála Austur-Skaftfellinga og allra þeirra sem um landið ferðast, en þá eru 30 ár frá því að lokið var byggingu Skeiðarárbrúar og hún tekin í notkun. Brúin sem er 820 metrar að lengd er lengsta brú landsins og með opnun hennar var hringvegurinn öllum opinn.

Ragnar Frank Kristjánsson þjóðgarðsvörður í Skaftafelli segir að þessa afmælis verði minnst með ýmsu móti og hann stefnir á viku skemmtun með margvíslegum uppákomum og meðal annars verður reynt að fá alla ráðherrana í heimsókn hingað. Afmælishátíðin er fyrirhuguð 10. til 17. júlí. Safnað verður öllum mögulegum heimildum, myndum og öðru viðkomandi þessari miklu framkvæmd fyrir 30 árum.
Þá verður vatnadrekinn, sem notaður var við árnar á sandinum frá 1961 til 1973 og í tengslum við brúarframkvæmdirnar vígður, en búið er að hressa uppá útlit hans og stilla honum upp neðan við brekkurnar hér, heiðgulum og fínum, segir Ragnar. Svo verður einnig vígsla á göngubrú og á gömlu hesthúsi sem stendur rétt ofan við Bölta-bæinn. Frá hesthúsinu er mikið víðsýni yfir sandana og árnar, þar geta menn gert sér hugmyndir um hvernig var að ferðast yfir sandana hér áður fyrr þegar allt var óbrúað og bara vegaslóðar milli ánna. Við erum að fá hingað hóp sjálfboðaliða sem koma sérstaklega til að vinna að endurbyggingu hesthússins. Ragnar segir að fleiri aðilar muni koma í samstarf um að minnast þessa merku tímamóta svo sem Sýslusafnið, ungmennafélagið og fleiri.
Vatnadrekinn er í eigu Sýslusafnsins en verður staðsettur í Skaftafelli.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica