Mars
Kátir krakkar í Nesjaskóla
Kátir krakkar í Nesjaskóla

15.03.2004 Mars

Sameiginleg opin vika Hafnar- og Nesjaskóla

Dagana 23. – 25. mars verður sameiginleg opin vika í Hafnar- og Nesjaskóla undir yfirskriftinni “Sóðar og slóðar erum við ekki”. Þema vikunnar er umhverfistengt og er markmiðið að nemendur og starfsfólk verði betur meðvitað um umhverfi sitt og umgengni við náttúruauðlindir jarðarinnar. Viðfangsefnum þessa verkefnis verður skipt í fjóra flokka sem eru: 1. Sorp og innkaup. 2. Samgöngur og loft. 3. Vatn og orka. 4. Virkjum aðra.

Að sögn Þorvaldar Viktorssonar skólastjóra Nesjaskóla er þetta í fyrsta sinn sem þessi háttur er hafður á þ.e.a.s. að blanda opinni viku Nesja- og Hafnarskóla saman og er þetta mjög ánægjulegt verkefni. Samstarf skólanna hefur gengið mjög vel við þetta verkefni og við vonumst til að sameiginleg þemavika verði þriðja hvert ár.
Skólarnir munu heimsækja hvorn annan og bekkir munu blandast í opinni viku og lokapunkturinn verður síðan sameiginleg árshátíð skólanna. Það verður því nóg af spennandi verkefnum í næstu viku og verður gaman að fylgjast með krökkunum glíma við verkefnið “Sóðar og slóðar erum við ekki”

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica