Mars
Einar Björn EInarsson
Einar Björn EInarsson

12.03.2004 Mars

Einar Björn tilbúinn á strandstað

Einar Björn Einarsson skipstjóri og hjólaskipaeigandi er núna með eitt hjólaskip sitt vestur á Meðallandsfjöru þar sem verið er að undirbúa björgun fjölveiðiskipsins Baldvins Þorsteinssonar. Ég er hér með hjólabátinn ef á þarf að halda t.d. til að komast út að skipinu en það er svo mikið brim núna að ekki verður reynt að fara út meðan svona er nema brýn nauðsyn yrði sagði Einar Björn.

Norski dráttarbáturinn Normand Mariner liggur hér fyrir utan og það er allt að fara á fullt við undirbúning við að koma taug úr honum í skipið og hafa nú tíu menn úr áhöfn Baldvins Þorsteinssonar verið fluttir með þyrlu Landhelgisgæslunnar um borð í skipið til að koma þar fyrir búnaði svo hægt verði að draga skipið af strandstaðnum. Einar Björn er ekki bjartsýnn á að mikið gerist í dag þarna á strandstaðnum vegna brims og veðurs en hann verður þarna áfram með hjólaskipið til taks ef á þarf að halda.

Stefnt er að því að reyna að draga skipið út á flóðinu í kvöld sem er á milli 21 til 22

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica