Mars
Flotinn í höfn
Lítið sjóveður er þessa stundina og liggja bátar því bundnir við bryggju og bíða þess að veður og sjór gangi niður. Ásgrímur Halldórsson og Jóna Eðvalds bíða eftir að veður gangi niður á loðnumiðunum, bæði skipin eru í höfn í Vestmannaeyjum. Sjóveðurspá gerir ráð fyrir 13 – 23 m/s en lítið eitt hægari í kvöld. Búast má við að heldur dragi úr vindi á morgun. Fyrir okkur landkrabbana þá gerir Veðurstofan ráð fyrir austan 10-15 m/s og rigning með köflum. Austan 5-13 m/s síðdegis á morgun, hvassast vestantil. Hiti 3 til 8 stig.
Frameftir næstu viku má búast við hæglætisveðri, hiti 3-8 stig um helgina en heldur kólnandi er líður á vikuna.





Skrifa athugasemd