Mars
Meistaraflokkur Sindra 2003
Meistaraflokkur Sindra 2003

12.03.2004 Mars

Sex farnir úr Sindra!

Á sunnudaginn mun mfl. karla hjá Sindra leika fyrsta leikinn sinn í deildarbikarkeppninni. Leikurinn er gegn Fjölni og verður leikinn í Reykjaneshöllinni kl. 16:00. Töluverðar breytingar hafa orðið á liði Sindra frá síðasta sumri og eru þær allar á einn veg, leikmenn hafa farið en engin komið í staðinn, enn sem komið er. Ef litið er á félagaskipti leikmanna Sindra frá 1. september 2003 til dagsins í dag þá hafa 6 leikmenn tilkynnt félagaskipti úr Sindra í önnur félög en engin skipt í Sindra.

Að sögn Gests Halldórssonar gjaldkera knd. Sindra er frágengið að einn af þessum leikmönnum snúi aftur til Sindra með vorinu og eins er 99,9% öruggt að sterkur erlendur markmaður muni standa á milli stanganna á komandi sumri.
Eins og staðan er í dag þá vonumst við til að tveir nýir leikmenn skipti yfir í Sindra á næstunni, fyrir utan markmanninn. Þetta eru báðir leikmenn með góða reynslu úr boltanum og verða vonandi góð viðbót við hópinn sem fyrir er sagði Gestur.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica