Mars
Hressir strákar í Cock Robin
Hressir strákar í Cock Robin

12.03.2004 Mars

Alltaf nóg um að vera á Hornafirði

Um síðustu helgi var óvenju mikið um að vera í lista og skemmtilífi Hornfirðinga, tvö leikrit frumsýnd og Stuðmanna skemmtun á Hótelinu. Ekki ætlar komandi helgi að vera síðri en sú síðasta. Í kvöld er hið árlega kúttmagakvöld Lions í Pakkhúsinu. Leikritið “Bar Par” verður sýnt í fjórða sinn í kvöld í Mánagarði, en leikritið hefur hlotið góða dóma og áhorfendur skemmt sér vel. Á morgun laugardag verða síðan tvær sýningar á “Allt í plati” með Leikhópnum Lopa. “Allt í plati” er skemmtilegt barnaleikrit sem engin ætti að missa af.

Á laugardagskvöld verður síðan lokasýning á “Með allt á hreinu” á hótelinu en föstudaginn 19. mars verður sýningin flutt á Broadway. Þrykkjurokk verður síðan í Sindrabæ á laugardagskvöld en þar koma fram þrjár stórgóðar rokksveitir, Cock Robin, Skítúr og Fiction, allar skipaðar ungum og upprennandi tónlistarmönnum.
Á sunnudaginn verða síðan tvær sýningar á leikritinu “Allt í plat” og á mánudagskvöld verður fimmta sýning Leikfélags Hornafjarðar á “Bar Par”. Það þarf því engum að leiðast um helgina á Hornafirði.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica