Mars
Ragnhildur Jónsdóttir afhenti verðlaunin
Ragnhildur Jónsdóttir afhenti verðlaunin

11.03.2004 Mars

Úrslit í stóru upplestrarkeppninni

Stóra upplestrarkeppnin var haldin í Hafnarkirkju í dag. Þetta er í fjórða skipti sem keppnin er haldin með þessu fyrirkomulagi. Á fimmta þúsund krakkar í 150 skólum um allt land hafa verið dugleg að æfa sig fyrir upplestrarkeppnina. Þátttakendur í þessari keppni voru tíu nemendur úr 7. bekk Grunnskólanna á Djúpavogi, Hrollaugsstöðum, Hofgarði í Öræfum og Hafnarskóla.

Sigurvegarar í upplestrarkeppninni voru;
1.sæti, Davíð Arnar Sigurðsson frá Grunnskólanum á Djúpavogi
2.sæti, Þórgunnur Þórsdóttir frá Hafnarskóla
3.sæti, Grettir Gautason frá Grunnskólanum á Djúpavogi.
Sigurvegararnir fengu peningaverðlaun frá Sparisjóði Hornafjarðar og allir keppendur fengu bókaverðlaun frá Eddu-útgáfu.

Nemendur úr tónskóla Austur-Skaftafellssýslu og frá Grunnskólanum á Djúpavogi fluttu tónlist. Kynnir var Ragnar Ægir Fjölnisson, en hann var í fyrsta sæti í keppninni 2003.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica