Mars
Leikskólinn Krakkakot heimsækir útibú Landsbankans
Börnin í Leikskólanum Krakkakoti fengu sér göngutúr í dag ásamt fóstrum sínum og heimsóttu útibú Landsbankans. Tilefni heimsóknarinnar var myndlistarsýning í bankanum á teikningum sem krakkarnir í Krakkakoti hafa unnið. Fjöldi mynda og teikninga prýða veggi og þil í bankanum og verður sýningin í nokkra daga.
Starfsfólk bankans tók vel á móti hópnum og bauð uppá ávaxtadrykki og kex sem var vel þegið, eftir þó nokkuð langa göngu.
Myndirnar eru virkilega skemmtilegar og sýna að hugmyndaflug höfundanna er í góðu lagi og kannski er einhver framtíðar listamaður í þessum hópi.
Mynd: Ingibjörg Valgeirsdóttir 6.ára





Skrifa athugasemd