Krakkar á ferð og flugi
Á sunnudaginn kl. 18:30 verður lokaþátturinn af “Krakkar á ferð og flugi” sýndur í sjónvarpinu. Það er Gunnar Örn Olgeirsson Hornfirðingurinn knái sem hleypir landsmönnum inn í líf sitt og fjölskyldu sinnar í þessum lokaþætti syrpunnar sem notið hefur mikilla vinsælda meðal landsmanna. Í þættinum er m.a. fylgst með Gunnari Erni í skólanum og skroppið í sumarbústaðinn í Stafafellsfjöllum, þar sem siglt er með gamlan trébát, hellar skoðaðir og farið á fjórhjól. Gunnar Örn er hress og kraftmikill strákur sem aldrei fellur verk úr hendi og verður spennandi að fylgjast með honum í sjónvarpinu á sunnudaginn.
Umsjónarmaður þáttanna er Linda Ásgeirsdóttir (Solla stirða) og dagskrárgerð er í höndum Ægis J. Guðmundssonar. Framleiðandi þáttanna er Ljósaskipti ehf





Skrifa athugasemd