Hrókurinn í Nesjaskóla
Krakkarnir í 3. bekk Nesjaskóla fengu góða heimsókn í morgun en þá færði Hrafn Jökulsson frá Skákfélaginu Hróknum, þeim að gjöf bókina “Skák og mát” sem er glæsileg kennslu- og æfingabók þar sem Anatolíj Karpov kennir ungum skákmönnum nýjar aðferðir til að tefla til sigurs, allt frá því þeir læra mannganginn. Karpov nýtur aðstoðar Andrésar, Mikka, Guffa og fleiri teiknimyndapersóna til að gera skákina skemmtilegri en nokkru sinni fyrr. Hrafn sagði að allir nemendur í þriðja bekk á Íslandi fengju þessa bók að gjöf og að lokinni heimsókn í Nesjaskóla væri Hrókurinn búinn að heimsækja 121 skóla á landinu. Þetta er glæsilegt framtak hjá Hróknum og á vafalaust eftir að glæða skákáhugann hjá ungum sem öldnum um allt land.
Albert Eymundsson bæjarstjóri heilsaði upp á krakkana og þakkaði Hrafni fyrir heimsóknina. Albert tilkynnti það svo formlega að hann mundi sjá til þess að ef haldið yrði skákmót í skólanum í framhaldi af þessari góðu gjöf, þá skyldi hann sjá til þess að útvega farandbikar og önnur verðlaun sem til þyrfti. Í framhaldi af orðum bæjarstjóra sagði Hrafn að ef slíkt skákmót yrði haldið þá mundi Hrókurinn mæta og aðstoða við mótið. Þannig að það stefnir allt í hörku skákmót í Nesjaskóla með vorinu.





Skrifa athugasemd