Mars
Hljómsveitin Skítúr á fullri keyrslu
Hljómsveitin Skítúr á fullri keyrslu (úr myndasafni)

10.03.2004 Mars

Þrykkjurokk 2004

Á laugardagskvöld kl. 20:00 munu ungir og efnilegar tónlistarmenn á Hornafirði efna til rokktónleika í Sindrabæ og eru tónleikarnir ætlaðir fyrir 13 ára og eldri og er aðgangseyrir kr. 300. Þær hljómsveitir sem koma fram eru Fiction, en hana skipa þeir Ragnar, Valur, Aron og Hörður. Cock Robin en hana skipa þeir félagar Emil, Elvar Bragi, Benni og Dóri. Þriðja hljómsveitin heitir Skítúr en hana skipa Jake, Emil, Júlli og Gísli Halldór. Hljómsveitameðlimir eru á aldrinum 14 – 20 ára. Það er því spennandi kvöld framundan í Sindrabæ þar sem allar helstu vonarstjörnur Hornafjarðar í rokk geiranum koma saman og skemmta sér og öðrum. Nú er bara um að gera fyrir unga sem aldna að drífa sig í Sindrabæ á laugardagskvöldið og upplifa rokkveislu af bestu gerð.

Aðstandendur tónleikanna vörðust allra frétta þegar borin var undir þá sá orðrómur að leyninúmer mundi skjóta upp kollinum á tónleikunum. Menn verða bara að mæta á tónleikana til að komast að því. Í fyrra voru haldnir svipaðir tónleikar sem tókust mjög vel.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica