Strumphóll breytir um svip
Nú er unnið hörðum höndum við að grafa grunn fyrir nýju Esso stöðinni við Vesturbraut og gengur verkið vel fyrir sig. Stefnt er að því að hin nýja stöð verði tilbúin í sumarbyrjun. Töluverðu efni hefur verið keyrt í hólinn á bak við stöðina enda var lögð áhersla á að leiksvæði barna á svæðinu yrði ekki skert. En eins og Hornfirðingar nær og fjær vita hefur hóllinn verið vel nýttur þá fáu daga á ári sem snjór er á Hornafirði og vonandi verða þessar breytingar sem gerðar verða til bóta og börnunum til ánægju.
Í gegnum tíðina hefur hin forni Strumphóll gengið undir ýmsum nöfnum sem hafa tekið mið af hverjir áttu landið og eða þeim húsum sem næst honum standa og má nefna nöfn eins og Bjartmarshóll, Dýralæknishóll og núna síðast Essohóll.





Skrifa athugasemd