Mars
Almannaskarð, horft frá vegi að sunnan
Almannaskarð, horft frá vegi að sunnan

09.03.2004 Mars

G. Þorsteinsson byggir vegskálana

Samningar um gerð jarðgangna undir Almannaskarð verða undirritaðir í dag. Það eru fyrirtækin Héraðsverk og Norska fyrirtækið Leonard Nilsen og sonner sem áttu lægsta tilboðið í verkið eða rúmar 779 milljónir, en kostnaðaráætlun Vegagerðarinnar hljóðaði upp á 856 milljónir. Reikna má með að fljótlega verði farið í að setja upp vinnubúðir og framkvæmdir hefjist fljótlega upp úr því. Gengið hefur verið frá samningi við G. Þorsteinsson á Hornafirði um byggingu vegskálanna.

Göngin eiga að vera tilbúin í júní á næsta ári. Göngin eru eins og áður hefur komið fram 1.146 m. löng, steinsteyptir vegskálar eru 162 m. og vegagerð um 4,1 km.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica