Mars
Rúna og Gísli í Æfintýri á gönguför
Rúna og Gísli í Ævintýri á gönguför (úr myndasafni)
Rúna og Gísli í Ævintýri á gönguför (úr myndasafni)

09.03.2004 Mars

Menningarlífið blómstrar

Um s.l. helgi var mikið um að vera í listalífinu á Hornafirði. Á föstudagskvöld frumsýndi leikfélag Hornafjarðar leikritið “Bar par” í Mánagarði við góðar undirtektir áhorfenda. Á sunnudaginn frumsýndi Leikhópurinn Lopi barnaleikritið “Allt í plati” og var húsfyllir. Gott leikrit í góðum flutningi nemenda Heppuskóla og var gaman að fylgjast með þátttöku yngstu áhorfendanna, sem oft tóku virkan þátt í sýningunni. Leikstjóri beggja þessara sýninga er Magnús J. Magnússon. Á laugardagskvöldið var sýningin “Með allt á hreinu” tónlistarveisla þar sem Stuðmanna stemningin er tekin fyrir og var mikið fjör á þeirri sýningu.

Á miðvikudaginn verður þriðja sýning á leikritinu “Bar par” og fjórða sýning verður á föstudaginn. Á fimmtudaginn verður stóra upplestrarkeppnin í Hafnarkirkju kl. 15:00 og verður þar margt til skemmtunar. Leikhópurinn Lopi sýnir síðan “Allt í plati” á laugardag og sunnudag.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica