Mars
Cool Express
Cool Express

08.03.2004 Mars

Styttist í lok loðnuvertíðar

Nú styttist í lok loðnuvertíðar og á Skinney-Þinganes eftir rúm 3.000 tonn óveidd. Jóna Eðvalds landaði í gær 750 tonnum og er hún komin aftur á miðin útaf Skarðsfjöru, ágætis veiðiveður er þar sem stendur en veðurspáin er ekki góð. Ásgrímur Halldórsson kom til löndunar í morgun með 750 tonn. Frysting á Rússlandsmarkað er í fullum gangi en frystingu á hrognaloðnu er lokið. Hrognavinnsla hefur gengið vel hjá Skinney-Þinganes en slík vinnsla hefur ekki verið hjá fyrirtækinu síðan 1997.

Nú eru eftir um 300.000 tonn af loðnu og því litlar líkur á að kvótinn muni nást að þessu sinni og ljóst að einhverjir tugir tonna muni brenna inni þetta árið.

Af einstökum verksmiðjum hefur Eskja á Eskifirði tekið á móti mestu loðnumagni, rúmlega 56.000 tonnum, en fast á hæla þeirra koma nágrannarnir hjá Síldarvinnslunni í Neskaupstað með rúm 55.000 tonn.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica