Mars
Húsbílar á leið til Hafnar s.l. sumar
Húsbílar á leið til Hafnar s.l. sumar

08.03.2004 Mars

Meðalumferð á dag 943 bílar

Sumir hafa velt því fyrir sér hvað margir bílar fari um vegina í nágrenni Hafnar á hverjum degi. Til að fá svör við því var leitað til Reynis Gunnarsonar hjá Vegagerðinni sem að vanda brást vel við og fékk hann umferðartalningu frá árinu 2003 á nokkrum stöðum á hringveginum frá Skeiðarársandi austur að Djúpavogi ásamt veginum yfir Öxi.
Mest er umferð um hringveginn vestan Hafnarvegar (við Lónsvegamót), þar er meðalumferð á dag yfir árið 943 bílar. Meðalumferð á dag frá 1.júní til 30.sept voru 1244 bílar og vetrarmánuðina 719 bílar. Minnst umferð á dag var 25.des. 443 bílar. Mest umferð á þessari leið á dag var 5. júlí 2982 bílar. Á hringvegi austan Hafnarvegar var meðal umferð á dag yfir árið 368 bílar. Meðaltal á dag yfir júní til og með sept. 572 bílar og vetrarmánuðina 229 bílar á dag. Minnsta umferð á dag var 31. des. 113 bílar og mest 23. júlí 936 bílar.

Meðal umferð á hringvegi austan Smyrlabjargar yfir árið var 260 bílar á dag. Meðaltal á dag yfir sumarmánuðina voru 474 bílar og yfir vetrarmánuðina 118. Minnst umferð á dag var 23. jan. 45 bílar, mest 1095 þann 6. júlí.

Um hringveg austan Hafnarvegar var meðal umferð á dag yfir árið 368 bílar. Meðalumferð á dag yfir sumarið 572 bílar og yfir vetrarmánuðina 229 . Minnsta umferð var 31. des. 113 bílar, mest 936 þann 23. júlí.
Á hringvegi við Sandfell var yfir árið meðal umferð á dag 254 bílar, sumarumferðin 490 bílar á dag og yfir vetrarmánuðina 102. Minnsta umferð var 24. des. 30 bílar og mest 4. júlí 1099 bílar.

Á hringvegi um Skeiðarársand var meðaltal á dag á árinu 227 bílar, yfir sumarið 448 bílar á dag og yfir veturinn 83 á dag. Minnst umferð var 24. des. 20 bílar, mest 6. júlí 1089 bílar.

Um Axarveg utan við Yxnagilsá var meðaltal yfir árið 88 bílar á dag, 176 yfir sumarið og 24 yfir veturinn. Mesta umferð taldist 1. ágúst 368 bílar. Vegurinn yfir Öxi hefur verið ófær vegna snjóa frá 10. janúar og ekki er komin áætlun um hvenær reynt verður að opna hann.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica