Gaman í lengdri viðveru
Lengd viðvera fyrir yngstu skólabörnin hefur verið starfrækt í Hafnarskóla í vetur og eru það krakkar í 1. – 4. bekk sem geta nýtt sér þessa þjónustu. Krakkarnir koma eftir að skóla líkur og eru 13 börn í lengdri viðveru, en að auki eru 4 börn úr sveitunum sem setjast yfir heimanámið meðan beðið er eftir skólarútunni. Umsjónarmaður með lengdri viðveru er Súsanna Torfadóttir og sagði hún að reynt væri að hafa þetta eins heimilislegt og hægt væri, enda börnin oft orðin þreytt eftir langan skóladag. Við erum dugleg að fara út þegar vel viðrar en þegar veðráttan leikur ekki við okkur þá finnum við okkur eitthvað skemmtilegt að gera innanhúss. Á miðvikudaginn var t.d. vídeódagur og þá var bökuð skúffukaka og allir höfðu það huggulegt.
Rétt er að benda þeim sem luma á leikföngum sem ekki er verið að nota að hugsa til krakkanna í lengdri viðveru. Okkur bráðvantar meira af leikföngum, Playmo, Lego púsl, og nánast hvað sem er væri vel þegið sagði Súsanna að lokum.





Skrifa athugasemd