Mars
Alltaf gaman á skautum
Alltaf gaman á skautum
Myndasafn (mynd:AriÞ)

04.03.2004 Mars

Aðalfundur Sindra

Ungmennafélagið Sindri hélt aðalfund sinn s.l. þriðjudag. Fram kom á fundinum að góð þátttaka er í þeim greinum sem boðið er upp á og fjármál deildanna eru í góðu lagi. Eins og undanfarin ár gengur illa að fá fólk til stjórnarstarfa í deildunum sem og aðalstjórn og er það umhugsunarefni fyrir íbúa sveitarfélagsins. Það er nokkuð ljóst að erfitt verður að halda úti virkri íþróttastarfssemi ef engin fæst til að sitja í stjórnum deildanna. Ný aðalstjórn var kjörin og hana skipa: Magnús Jónasson, formaður, Valdemar Einarsson, gjaldkeri og Herdís Tryggvadóttir, ritari.

Á aðalfundinum var samþykkt inntökubeiðni skautaáhugafólk á Hornafirði og í framhaldi af því var stofnuð skautadeild Sindra.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica