Mars
Björn Arnarson
Björn Arnarson

03.03.2004 Mars

Björn sigraði í vetrarhlaupinu

Vetrarhlaupi, keppni fuglaskoðara um hver mundi sjá flestar tegundir fugla frá 1.desember 2003 til 29.febrúar 2004 er lokið. Sigurvegari í keppninni var Björn Arnarson á Höfn sem sá 89 tegundir fugla á tímabilinu. Tíu manns skráðu sig til leiks og var keppnin lengi tvísýn og spennandi. Alls sáust 98 tegundir. Sjaldséðasti fuglinn sem Björn sá var sparrhaukur sem sást við Stafafell í Lóni og mun þetta vera í fjórða sinn sem hann sést hér á landi svo vitað sé. Sparrhaukur er á stærð við smyril og drepur smáfugla sér til matar. Hann er algengur í Evrópu, hraðfleygari en smyrill, skæðari í smáfuglunum og á auðvelt með að veiða í skóglendi.

Framundan er einn besti árstími fuglaáhugamanna þegar farfuglarnir koma og flækingsfuglarnir sem koma flestir vor og haust. Með hlýnandi veðurfari fjölgar fuglategundunum sem koma hingað og eins þeim sem verpa hér og segir Björn Arnarson að þar hafi aukin skógrækt mikil áhrif, t.d. er glókollur, minnsti fugl í Evrópu, orðinn landnemi hér síðan 1994. Glókollur er eingöngu skógarfugl og er hann orðinn annar algengasti varpfuglinn á skógræktarsvæðum á austurlandi. Fastar varpfuglategundir hér á landi eru 73 og af þeim eru um 40 farfuglar.
Á www.fuglar.is er væntanlegar upplýsingar um komur farfugla frá 1998 til 2004.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica