Ekki útlit fyrir sjóveður næstu daga
Ekki er útlit fyrir sjóveður hjá netabátum á Höfn næstu tvo daga og eru þeir búnir að taka upp netin. Veiði hefur verið dræm undanfarið ,,svona kropp, 3 -5 tonn á bát “ sagði Sívar Árni Scheving hjá Bestfiski. Sex bátar landa hjá Bestfiski og þar vinna 12- 14 manns. Við bíðum með að bæta við mannskap þangað til að fer að veiðast betur, leggjum bara harðara að fólkinu hér á meðan því þetta er alveg úrvals lið sem við höfum og það ræður vel við álag.
Gunnar Ásgeirsson hjá Skinney Þinganesi sagði að vinnsla hefði verið stöðug hjá þeim það sem af er vertíðinni. Fimm bátar eru á netum og fer allur þorskur í salt, ýsa og karfi eru flutt til Reyðarfjarðar og unnið þar í frystingu.
Alls hefur verið landað 13.000 tonnum af loðnu hjá Skinney Þinganesi og af því verið fryst 5000 tonn. Hrognataka hefst á næstu dögum. Loðnuskipin hafa verið að veiðum á Mýrarbugt og við Kvísker.





Skrifa athugasemd