Mars
Sungið á sal í Hafnarskóla
Sungið á sal í Hafnarskóla

03.03.2004 Mars

Stóra upplestrarkeppnin nálgast

Þá liggur fyrir hverjir verða fulltrúar Hafnarskóla á lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar sem fram fer fimmtudaginn 11. mars kl. 15:00 í Hafnarkirkju. Þau sem keppa fyrir Hafnarskóla eru: Áróra Snorradóttir, Hafdís Hauksdóttir, Hilmar Guðjónsson, Selma Lind Jónsdóttir og Þórgunnur Þórsdóttir. Á lokahátíðinni munu nemendur frá Hafnarskóla, Hrollaugsstaðaskóla, Grunnskólanum Hofgarði og Grunnskóla Djúpavogs reyna með sér í upplestri og að auki verður boðið upp á tónlistaratriði. Nú er bara um að gera fyrir bæjarbúa að fjölmenna í Hafnarkirkju í næstu viku og hlýða á upplestur krakkanna og njóta ljúfra tónlistar.

Stóra upplestrarkeppnin er orðin hluti af Íslensku námsefni 7. bekkjar enda góð leið til að æfa nemendur í framkomu. Meðal þess sem tekið er tillit til þegar framsögn er metin er, líkamsstaða, raddstyrkur, blæbrigði, hraði, framburður og samskipti við áhorfendur.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica