Þorrablótsferð í Snæfell
Um s.l. helgi fóru félagar í Hornafjarðardeild ferðaklúbbsins 4x4 í þorrablótsferð í Snæfellsskála. Þorkell Kolbeins sagði að þeir hefðu lagt á stað síðdegis á föstudag og var farið á 7 bílum og keyrt austur um, inn Fljótsdalsheiði og endað í Snæfellsskála. Á laugardeginum ókum við inn í Maríutungur og þar inn á jökul. Farið var yfir Brúárjökul í Kverkfjöllum og Hveragilið skoðað. Síðan lág leiðin um Grágæsadal og Kárahnjúka og komið til baka um kvöldmatarleyti í Snæfellsskála. Jón Bragason var þá mættur þar við þriðja mann með þorramat svo hægt væri að slá upp ekta þorraveislu.
Á sunnudagsmorgni var eins og daginn áður ekið inn á jökul og nú fórum við yfir Eyjabakkajökulinn og upp á Grenndil. Síðan var stefnan tekin á Fossárdal þar sem við fórum niður í byggð með viðkomu á Norðurhnútu, Þrándarjökli, Sunnutindi og fleiri stöðum. Veður og færð var eins og best getur orðið.





Skrifa athugasemd