Mars
Hera
Hera

02.03.2004 Mars

Stórtónleikar í kvöld

Í kvöld kl. 20:00 verða sannkallaðir stórtónleikar í Nýheimum. Tónleikar sem engin má missa af. Tónleikarnir bera nafnið “Evrópuvegavinna á ferð um Ísland” og þar koma fram Hera, sem valin var besta söngkona ársins á Íslensku tónlistarveðlaununum 2003. Fiamma sem er ítölsk söngkona en með henni leika sekkjapípu- og bassaleikarinn Jessica Lombardi og harmonikkuleikarinn Alberto Cottica og flokkast tónlist þeirra undir ”ethno-techno” og Adam Masterson sem er 22 ára gamall Lundúnarbúi sem sækir áhrif sín til Van Morrison og Bruce Springsteen. Adam hefur nýverið sent frá sína fyrstu plötu sem fengið hefur einróma lof gagnrýnanda.


Hornfirskir tónlistarmenn munu ekki láta sitt eftir liggja á tónleikum og fram munu koma: Hulda Rós og Parket, Black Hole og Think Pink.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica