Ríki Vatnajökuls - Febrúar
    <description>Ríki Vatnajökuls</description>
Niðurrif hafið á gamla Esso-skálanum
      <description>Það var ekki mikið eftir af gamla Esso-skálanum við Vesturbraut eftir að Óli í Bóli var búinn að fara með gröfuna á hann. Sá gamli þurfti að víkja fyrir nýju byggingunni sem þar á að reisa og því var þetta nauðsynlegt. Ekki ólíklegt að nokkrir af áhorfendum að niðurrifinu í morgun hafi fellt tár enda gamli skálinn búinn að þjóna Hornafirðingum og ferðamönnum vel síðustu 30 árin. Búið er að setja upp söluskúr til bráðabirgðar ásamt olíutönkum og dælum á þvottaplaninu til að geta sinnt viðskiptavinum þar til nýja þjónustumiðstöðin verður tekin í notkun.</description>
Landbrot við Jökulsá á Breiðamerkursandi
      <description>Vegna viðvarandi landbrots við Jökulsá á Breiðarmerkusandi hefur Landsvirkjun í samvinnu við Vegagerðina, um alllangt skeið, fylgst náið með breytingum sem verið hafa af völdum sjávargangs á svæðinu. Nú er svo komið að fjarlægð sjávarkambs að nærundirstöðu sjávar við stæðu nr. 241 í Prestbakkalínu 1 er komin niður í 25 m. en í mars 2002 var þessi sama fjarlægð 42 m. Með hliðsjón af þessari þróun hefur Landsvirkjun hafið undirbúning að færslu á línunni með því að óska eftir tilskyldum leyfum vegna hugsanlegra framkvæmda.</description>
Steingrímur J. veislustjóri á Góuhófinu
      <description>Öræfingar halda sitt árlega Góuhóf í Hofgarði í Öræfum 6.mars n.k. Níu manna nefnd sér um undirbúning þess. Skemmtiatriði verða að venju, fluttar gamanvísur um menn og málefni og rifjað verður upp það frásagnarverðasta frá liðnu ári. Hvað matinn varðar þá er alltaf hlaðborð á góuhófum með safaríkum steikum og fjölbreyttu meðlæti að hætti þeirra Freysnesbræðra, Benedikts og Andra Jónssona en þeir hafa séð um Góu-hlaðborðið síðustu fimm árin. Fyrir dansinum leikur hljómsveitin Nefndin. Veislustjóri verður Steingrímur J. Sigfússon.</description>
Vetrarmót Hornfirðings um helgina
      <description>Mikil gróska er hjá hestamönnum í Hornafirði  núna og stefnir Hestamannafélagið Hornfirðingur á að halda vetrarmót í opnu tölti nk. sunnudag. Mótið hefst kl. 14 niður við Stekkhól og verður keppt í flokki barna 12 ára og yngri, flokki unglinga 13-16 ára, kvennaflokki, karlaflokki, og heldrimanna/kvenna flokki og er aldurstakmarkið þar 50 ára.  Skráning er á staðnum í alla flokka og er skráningargjaldið kr. 500, nema í barnaflokk þar sem það er ókeypis. Mótið fer fram á beinni braut, það er riðið er í aðra áttina á hægu tölti en til baka með frjálsri ferð.  Ef veðrið helst óbreitt verður mótið haldið á ís.</description>
Opin vika í FAS
      <description>Mikið líf og fjör hefur verið í Framhaldsskóla Austur-Skaftafellssýslu undanfarið enda stendur nú yfir opin vika í skólanum. Hver dagur hefur byrjað á söng þar sem nemendur og kennarar hafa þanið raddböndin með miklum ágætum. Ýmsar kynningar hafa verið í gangi m.a. kynnti Hanný Heiler fyrirhugað reiðnámskeið, fulltrúi slysavarnafélagsins kynnti starfssemi félagsins, litboltaíþróttin var kynnt sem og skautaíþróttin, fjallað var um kajakasmíðar og kajakasiglingar og margt fleira. Hópastarf var með miklum blóma og voru m.a. blaðahópur, ljósmyndahópur og videóhópur. Framhaldsskólamót í Hornafjarðarmanna var haldið undir styrkri stjórn Alberts Eymundssonar. Sigurvegari á því móti var Bergþóra Ágústsdóttir</description>
Stutt á loðnumiðin
      <description>Loðnuskipin eru nú á veiðum nokkrar mílur suður úr Hornafirði. Lítil veiði var í nótt og létu flest skipin reka, enda var leiðindaveður á miðunum. Í morgun gekk síðan veðrir niður og tók þá veiðin heldur að glæðast og er ágætis veiði á miðunum núna. Jóna Eðvalds SF-200 landaði í gær um 200 tonnum og Ásgrímur Halldórsson SF-250 landaði 300 tonnum. Í nótt landaði Svanur RE-45, 700 tonnum af loðnu í bræðsluna hjá Skeggey og s.l. laugardag landaði Oddeyrin EA-210, 730 tonnum. Björn Traustason verksmiðjustjóri sagðist vonast eftir að aukinn kraftur færi að færast í veiðarnar þannig að meira hráefni bærist í bræðsluna.</description>
Öræfingar reisa 300 fermetra hús fyrir björgunar- og slökkviliðsbifreið
      <description>Stjórn Kára er ákaflega þakklát landeigendum í Freysnesi fyrir að leigja okkur land undir húsið segir Ragnar Frank Kristjánsson formaður Kára. Það er mat slökkviliðsstjóra Sveitarfélagsins Hornafjarðar að fyrirhuguð staðsetning fyrir slökkvibifreið sé mjög góð m.t.t. eldvarna, þá nálægt Skaftafelli og Svínafelli. Björgunarsveitarbíll kemur að góðum notum á innbæjum, því sveitin á annan bíl sem geymdur verður á Fagurhólsmýri. Oft eru veður válind í Öræfum og því mikilvægt að vera með björgunarsveitarbíl beggja vegna Sandfells.</description>
Stemning á Öskudaginn
      <description>Mikil stemning hefur verið á Hornafirði í dag enda bærinn fullur af grímubúnum krökkum sem skemmta sér og öðrum með söng og leik. Veðrið hefur leikið við bæjarbúa í dag, smá frost en bjart og stillt. Öskudagsball hófst í íþróttahúsinu kl. 17:00 og stendur til kl. 19:00 og þar á eflaust eftir að verða mikið fjör hjá ungum sem öldnum. SkjáVarp birtir myndir af krökkunum eins og gert hefur verið undanfarin ár og er það orðin fastur liður hjá fyrirtækinu enda mikil eftirvænting og spenningur hjá krökkunum að fá að sjá sig í sjónvarpinu. Einnig hafa verið opnaðar myndasíður á hornafjordur.is þar sem eru myndir teknar hjá SkjáVarpi og í Nesjaskóla.</description>
Spennandi nám í frumkvöðlafræðum
      <description>Nemendur í frumkvöðlafræðum við Framhaldskólann í Austur-Skaftafellssýslu unnu nú nýverið að verkefni sem fólst í að stofna fyrirtæki með öllu því sem fylgir þvílíkri framkvæmd. Nemendurnir þurftu að afla hlutafjár, hefja framleiðslu á vöru og selja hana og að lokum gera reksturinn upp og helst að skila álitlegum hagnaði. Nemendur skiptust í tvo hópa, annar hópurinn skellti sér í bókaútgáfu en hinn hópurinn hóf framleiðslu á brjóstsykri.</description>
Líf og fjör á Öskudag
      <description>Þá er Öskudagurinn runnin upp með öllu því fjöri sem honum fylgir. Í Nesjaskóla og Hafnarskóla mæta börnin í grímubúningum í skólann og skólastarfið snýst allt um þennan ágæta dag. Þorvaldur Viktorsson skólastjóri Nesjaskóla sagði að þar yrði margt sér til gamans gert, börn og kennarar væru grímubúin og vegleg skemmtun með tilheyrandi dansleik yrði í Mánagarði, mötuneyti skólans býður upp á hamborgara í tilefni dagsins og hápunkturinn yrði síðan þegar kötturinn yrði sleginn úr tunnunni.</description>
Hjá dagvistun fatlaðra hafa menn nóg fyrir stafni
      <description>Hjá dagvistun fatlaðra á Hornafirði hafa menn alltaf nóg fyrir stafni. Einn liður í starfinu er að pakka vörum fyrir fyrirtæki gegn vægu gjaldi og hefur afraksturinn m.a. verið notaður til að fara í dagsferðir eða út að borða. Maren Ósk Sveinbjörnsdóttir fulltrúi málefna fatlaðra í sveitarfélaginu sagði að það hefði verið árið 2001 sem dagvistun fatlaðra bauð fyrst fyrirtækjum á staðnum að kaupa öskupoka eða að pakka sælgæti og dóti fyrir Öskudaginn.</description>
Aukið úrval sumarhúsalóða
      <description>Fyrir nokkru sótti Ulla R. Petersen landslagsarkitekt, fyrir hönd landeigenda í Freysnesi í Öræfum, um leyfi fyrir frístundabyggð á svæði sem er neðan við Freysnes. Anna María Ragnarsdóttir í Freysnesi segir að mikið hafi verið spurt um sumarhúsalóðir á svæðinu  og þarna sé mjög hentugt svæði og vel gróið.
Bæjarráð hefur nú samþykkt að deiliskipulag í Freysnesi verði auglýst, einnig deiliskipulag fyrir hluta skógræktarsvæðis í Haukafelli á Mýrum sem Skógræktarfélag Austur-Skaftafellssýslu á.</description>
Vetur konungur staddur á Íslandi
      <description>Vetur konungur er aðeins að reyna að minna á sig þessa dagana og kl. 06:00 í morgun var 7 stiga frost og norðvestan 11 m/s í Akurnesi. Töluvert kaldara var á Hveravöllum á sama tíma en þar var 16 stiga frost og norðan 6 m/s. Í svona miklum vindi þá bítur frostið vel í andlitið og núna þurfa Hornfirðingar svo sannarlega að dúða sig vel, bíta á jaxlinn og halla sér vel upp í vindinn til að komast leiðar sinnar. Veðurhorfur fyrir næsta sólarhringinn gera ráð fyrir norðlægri átt, víðast 8-13 m/s og léttskýjað, en heldur hægari síðdegis. Frost 4 til 10 stig.</description>
Bergárfoss heitir í raun Mígandafoss
      <description>Leiðin inn að Bergá og upp að fossi er alltaf jafn vinsæl hjá Hafnarbúum allan ársins hring. Leiðin frá Lóns-vegamótum inn að og upp með Bergá er ein vinsælasta gönguleiðin í nágrenni Hafnar. Margir fallegir staðir eru við ána og í Bergárdalnum. Líklega vita ekki margir að fossinn sem í daglegu tali er kallaður Bergárfoss heitir Mígandafoss. Af þessum fossi dregur Mígandi, lækurinn nafn og hefur hann upphaflega komið úr gilinu þar sem fossinn er. Í örnefnaskrá segir; Bergá myndast á vatni úr þrem giljum í Bergárdal, Leyni sem er vestasta gilið, Miðfellsgili austan við Miðfell og nafnlausu gili sem kemur úr Botnum. Í því er hár foss sem heitir Mígandafoss, nú oft kallaður Bergárfoss.</description>
Breytingar hjá Esso Vesturbraut, ÁTVR flytur
      <description>Í fréttatilkynningu sem Olíufélagið Esso sendi frá sér kemur fram að gert hefur verið samkomulag við rekstraraðila ÁTVR á Höfn um flutning vínbúðarinnar í nýja þjónustustöð félagsins á Vesturbraut sem opnuð verður í sumar. Í samkomulaginu felst jafnframt að rekstraraðilar ÁTVR taki við rekstri stöðvarinnar af KASK. Með tilkomu vínbúðarinnar verður hið nýja hús fullnýtt og þjónusta við viðskiptavini félagsins á Höfn stórefld.  Auk vínbúðar ÁTVR er gert ráð fyrir sölu á skyndibita, dagvörum, sérvöru s.s. grillbúnaði auk bílavöru.</description>
Framtíðarkonur afhenda námsefni í Lífsleikni
      <description>Í morgun afhentu fulltrúar Slysavarnadeildarinnar Framtíðarinnar á Hornafirði, Hafnarskóla að gjöf námsefni í Lífsleikni sem er ætlað 4., 5. og 6. bekk grunnskólanna, námsefnið er gefið út af Slysavarnafélaginu Landsbjörg. Það voru nemendur í 4. bekk Hafnarskóla sem fengu afhent fyrstu eintökin. Markmið námsefnisins er m.a. að draga úr slysum hjá börnum og unglingum, virkja samvinnu heimilis og skóla í þessari baráttu og gera börn meðvituð um ábyrgð á eigin velferð. Höfundur efnisins er Unnur María Sólmundardóttir, kennari.</description>
Tilbúnar lóðir á Leirusvæðinu
      <description>Undanfarin ár hafa fá einbýlishús verið byggð á Hornafirði og ekki margt sem bendir til þess að mikil breyting verði þar á næstu misserin. Þrátt fyrir skort á byggingu einbýlishúsa hafa byggingarverktakar á staðnum haft töluvert að gera. Má nefna byggingu 4 íbúða húss við Víkurbraut á vegum Búseta og stækkun á vélasal hjá Skinney-Þinganes. Þá er Olíufélagið er að ráðast í byggingu nýs þjónustuhúss og hjá Olís er allt í fullum gangi við endurbyggingu á þeirra húsnæði.</description>
Framkvæmdir við Hlíðará í Lóni
      <description>Verktakafyrirtækið SG vélar ehf á Djúpavogi er byrjað á framkvæmdum við Hlíðará í Lóni. Búið er að rífa gömlu einbreiðu brúna sem þar var og í hennar stað kemur stálplöturæsi. Talsvert magn af efni þarf að fjarlægja þar sem lækka þarf  árfarvegin fyrir ræsishólkinn sem er fyrirferðamikill eins og sjá má á myndinni.
Brúin á Össurá í Lóni verður einnig rifin og samskonar stálplöturæsi sett í staðinn og eru það SG vélar ehf sem sjá um þá framkvæmd. Tilboð SG véla ehf í verkið var 14.257.900 kr. Verkinu á að vera lokið fyrir 15.maí 2004.</description>
      <alt>Framkvæmdir við Hlíðará í Lóni</alt>
Fleiri smáhýsi á tjaldstæðið
      <description>Náttból ehf. setti niður fimm smáhýsi á tjaldstæðinu á Höfn s.l. sumar og sjötta húsið býður flutnings á tjaldstæðið. Fyrirtækið áætlar að bæta 8-10 smáhýsum við áður en ferðamanna tíminn í sumar byrjar. Jón Stefán Friðriksson einn af eigendum Náttbóls segir að ekki sé ákveðið hvort þetta verða samskonar hús og þau sem komin eru, það kemur í ljós á næstu dögum, en verið er að skoða fleiri gerðir húsa.  
Ekki liggur fyrir hvort nýju húsin verða sett við hlið hinna sem fyrir eru, en það skýrist þegar deiliskipulag sem er að fara af stað verður komið.</description>
Varnaliðsþyrla við Heilsugæslustöðina
      <description>Um kl. 17:30 í dag mátti heyra háar drunur í snjóhríðinni sem skall fyrirvaralaust á okkur Hafnarbúa,  snjóhríðin var svo þétt  á því augnabliki að ekki var hægt að greina hvaðan drunurnar komu og gera sér grein fyrir því hvað var þarna á ferðinni. Skýringin á þessu var hin eðlilegasta en drunurnar komu frá þyrlu varnaliðsins sem flaug mjög lágt yfir bæinn. Þyrlan er í sínu reglubundna æfingarflugi um landið en að þessu sinn ákvað áhöfnin að lenda á þyrlubrautinni við Heilbrigðisstofnunina og hafa nætursetu í góðu yfirlæti á Hótel Höfn.</description>
Og svo fór að snjóa
      <description>Eins og hendi væri veifað hvarf febrúar blíðan sem leikið hafði við okkur Hornfirðinga undanfarið. Nákvæmlega klukkan 16:17:08 byrjaði að snjóa og veturinn gekk aftur í garð. Hinn sanni Hornfirðingur tekur þessum veðrabrigðum með stóískri ró, tuldrar kannski eitthvað ofaní hálsmálið hjá sér, hallar sér upp í vindinn og heldur göngunni áfram. Veðurstofan gerir ráð fyrir suðvestan og vestan 10-15 m/s og éljagangi, en heldur hægari austantil í fyrstu og léttskýjað að mestu. Norðvestan 8-13 m/s og léttskýjað í fyrramálið, en hægari síðdegis. Kólnandi veður, frost 1 til 6 stig á morgun.</description>
Áheitalestur fyrir Samfésball
      <description>Nemendur í 9. og 10. bekk Heppuskóla standa fyrir áheitalestri milli kl. 13:00 og 23:00 í dag. Krakkarnir eru að safna í ferðasjóð á Samfésballið sem haldið verður í Laugardalshöll 27. febrúar n.k. Lesið verður úr verkum Þórbergs Þórðarsonar og fer upplesturinn fram í verslun 11-11, Miðbæ. Samfés stendur fyrir samtök félagsmiðstöðva á Íslandi og er komin hefð á að Þrykkjan, félagsmiðstöð unglinga á Hornafirði mæti með galvaskan hóp unglinga á þennan stórdansleik þar sem margar af bestu hljómsveitum landsins koma fram. Allt kostar þetta sitt og til að létta undir með kostunaraðilum (foreldrum) og sýna viljan í verki munu unglingarnir lesa fyrir gesti og gangandi í 10 tíma.</description>
Ég á þrjá hreyfihamlaða bræður
      <description>Í dag verður byrjað að selja miða á matarveisluna til styrktar fötluðum á Hornafirði. Veislan verður haldin í Nesjaskóla 10. apríl n.k. Aðeins er reiknað með að selja 100 miða, og því eins gott fyrir þá sem hafa hugsað sér að taka þátt í þessum glæsilega kvöldverð og styrkja um leið gott málefni að panta sér miða sem allra fyrst. Allir sem koma að veislunni gefa vinnu sína og fjölmörg fyrirtæki styrkja framtakið með vörum og þjónustu.</description>
Umsækendurnir, tíu konur og ellefu karlar
      <description>Þegar búið var að fara yfir umsóknir þeirra sem sóttu um stöðu sérfræðings í þjóðgarðinum í Skaftafelli  kom í ljós að þær voru 21 en ekki 18 eins og áður var sagt frá.  Umsækendurnir, tíu konur og ellefu karlar eru allir með langskólamenntun og mikla reynslu en þeir eru frá Akureyri, Ísafirði, höfuðborgarsvæðinu, Selfossi og nágrenni, Kirkjubæjarklaustri og Austur Skaftafellssýslu.</description>
Loðnukvótinn aukinn
      <description>Rannsóknarskipið Árni Friðriksson kom í gær til hafnar úr loðnuleiðangri sem staðið hafði yfir frá 11. febrúar. Í leiðangrinum mældust alls 930.000 tonn af kynþroska loðnu á miðunum útaf Austur- og Norðausturlandi. Eins og greint var frá í morgun á hornafjordur.is voru menn töluvert bjarsýnir á að loðnukvótinn yrði aukinn verulega eftir þennan leiðangur.</description>
Öskudagsball í íþróttahúsinu
      <description>Nú styttist í Öskudaginn og krakkarnir farnir að undirbúa sig fyrir bæjarröltið með viðeigandi búningum og söngatriðum. Nú hefur foreldraráð 5. og 6. flokks stelpna hjá Sindra ásamt Æskulýðs og tómstundaráði Hornafjarðar ákveðið að standa fyrir Öskudagsballi í íþróttahúsinu milli kl. 17 og 19 n.k. miðvikudag. Börn á öllum aldri eru velkomin á ballið og verður frítt inn. Þetta er þarft og gott framtak og vonandi verður Öskudagsball árlegur viðburður á Hornafirði héðan í frá.</description>
Fleiri karlar en konur á Hornafirði
      <description>Samkvæmt tölum Hagstofunnar voru íbúar í Sveitarfélaginu Hornafirði 2.304 þann 31. desember 2003. Íbúum sveitarfélagsins hefur því fækkað um 28 á milli ára. Kynjaskipting í sveitarfélaginu er konum heldur í hag að margra mati, en konur eru 1.104 á móti 1.200 karlmönnum. Fjölmennasti árgangurinn er fæddur 1991, samtals 53 einstaklingar, 30 karlar og 23 konur. Fast á hæla þeim koma síðan þeir sem eru fæddir 1988 samtals 49 einstaklingar. Íbúar í sveitarfélaginu 67 ára og eldri eru 253 samkvæmt sömu heimildum og eru karlarnir aðeins fleiri eða 129 á móti 124 konum.</description>
Verður loðnukvótinn aukinn um 250 þúsund tonn?
      <description>Nýjustu fréttir úr loðnuleiðangri Hafrannsóknarstofnunar herma að um verulega aukningu gæti orðið að ræða í úthlutun loðnukvóta. Bjartsýnustu menn tala um allt að 250 þúsund tonna aukningu, en það ætti að skýrast á næstu dögum hver loka niðurstaðan verður. Samkvæmt tölum frá Fiskistofu eru nú óveidd um 256 þúsund tonn af loðnu og ef kvótaaukningin fer eins bjartsýnustu menn spá þá eru næg verkefni framundan bæði í veiðum og vinnslu á loðnu. Ágætis veiði hefur verið á loðnumiðunum undanfarið. Ásgrímur Halldórsson SF-250 landaði í gær 800 tonnum af loðnu og var stefnt aftur á miðinn í gær en vegna brælu á loðnumiðunum hélt hann til hafnar á Djúpavogi ásamt Jónu Eðvalds.</description>
Litboltafélag á Höfn
      <description>Stofnun Litboltafélags Hornafjarðar er vel á veg komið og vantar bara virðisaukanúmerið segir Gunnar Ingi Valgeirsson einn af fjórum stofnendum og hann á von á að félagið verði formlega stofnað fyrir lok þessa mánaðar. 
Hvers konar leikur er litbolti? Þetta er eiginlega stríðsleikur segir Gunnar Ingi, notaðar eru byssur til að skjóta kúlum sem gefa frá sér lit eða málningu. Leikurinn byggist upp á því að skipt er í tvö lið sem keppa um landsvæði, virki eða eitthvað annað. Það sést vel hvar skotin hitta því þar verður málningarklessa eftir sem svo fer þegar rignir. Þetta er leikur líkt og tölvuleikir nema hann er raunverulegur, ekki alvöru kúlur en mikil hlaup og góð hreyfing.</description>
Upplýsingaskilti og merking gönguleiða
      <description>Unnið er að merkingu áninga-og áhugaverðra staða í Sveitarfélaginu Hornafirði og einnig verða sett upp skilti fyrir nokkra bæi sem eftir var að merkja. Sigurlaug Gissurardóttir í Árbæ hefur ásamt fleirum unnið ötullega að koma á  merkingu gönguleiða í sýslunni og kortlagningu þeirra.  “Við vonumst til að vegagerðin ljúki við nokkra áningastaði í viðbót á þessu ári en hún sér um að gera snyrtileg útskot með afmörkun við gönguleiðir og áhugaverða staði,” segir Sigurlaug. Setja á upp merki hvar hver sveit í sýslunni byrjar og verður það væntanlega komið fyrir sumarið og einnig eru nokkur stór fræðsluskilti í vinnslu.</description>