Mikil gróska er hjá hestamönnum í Hornafirði núna og stefnir Hestamannafélagið Hornfirðingur á að halda vetrarmót í opnu tölti nk. sunnudag. Mótið hefst kl. 14 niður við Stekkhól og verður keppt í flokki barna 12 ára og yngri, flokki unglinga 13-16 ára, kvennaflokki, karlaflokki, og heldrimanna/kvenna flokki og er aldurstakmarkið þar 50 ára. Skráning er á staðnum í alla flokka og er skráningargjaldið kr. 500, nema í barnaflokk þar sem það er ókeypis. Mótið fer fram á beinni braut, það er riðið er í aðra áttina á hægu tölti en til baka með frjálsri ferð. Ef veðrið helst óbreitt verður mótið haldið á ís.
Lesa meira