Febrúar

Niðurrif gamla Essoskálans

Niðurrif hafið á gamla Esso-skálanum - 28.02.2004 Febrúar

Það var ekki mikið eftir af gamla Esso-skálanum við Vesturbraut eftir að Óli í Bóli var búinn að fara með gröfuna á hann. Sá gamli þurfti að víkja fyrir nýju byggingunni sem þar á að reisa og því var þetta nauðsynlegt. Ekki ólíklegt að nokkrir af áhorfendum að niðurrifinu í morgun hafi fellt tár enda gamli skálinn búinn að þjóna Hornafirðingum og ferðamönnum vel síðustu 30 árin. Búið er að setja upp söluskúr til bráðabirgðar ásamt olíutönkum og dælum á þvottaplaninu til að geta sinnt viðskiptavinum þar til nýja þjónustumiðstöðin verður tekin í notkun. Lesa meira
 
Stutt eftir í línuna

Landbrot við Jökulsá á Breiðamerkursandi - 27.02.2004 Febrúar

Vegna viðvarandi landbrots við Jökulsá á Breiðarmerkusandi hefur Landsvirkjun í samvinnu við Vegagerðina, um alllangt skeið, fylgst náið með breytingum sem verið hafa af völdum sjávargangs á svæðinu. Nú er svo komið að fjarlægð sjávarkambs að nærundirstöðu sjávar við stæðu nr. 241 í Prestbakkalínu 1 er komin niður í 25 m. en í mars 2002 var þessi sama fjarlægð 42 m. Með hliðsjón af þessari þróun hefur Landsvirkjun hafið undirbúning að færslu á línunni með því að óska eftir tilskyldum leyfum vegna hugsanlegra framkvæmda. Lesa meira
 
Kokkarnir í Freysnesi , bræður Benedikt og Andri Már ásamt syni Andra

Steingrímur J. veislustjóri á Góuhófinu - 27.02.2004 Febrúar

Öræfingar halda sitt árlega Góuhóf í Hofgarði í Öræfum 6.mars n.k. Níu manna nefnd sér um undirbúning þess. Skemmtiatriði verða að venju, fluttar gamanvísur um menn og málefni og rifjað verður upp það frásagnarverðasta frá liðnu ári. Hvað matinn varðar þá er alltaf hlaðborð á góuhófum með safaríkum steikum og fjölbreyttu meðlæti að hætti þeirra Freysnesbræðra, Benedikts og Andra Jónssona en þeir hafa séð um Góu-hlaðborðið síðustu fimm árin. Fyrir dansinum leikur hljómsveitin Nefndin. Veislustjóri verður Steingrímur J. Sigfússon. Lesa meira
 
Hestar í girðingu við Stekkhól (Mynd Sigfús Már)

Vetrarmót Hornfirðings um helgina - 26.02.2004 Febrúar

Mikil gróska er hjá hestamönnum í Hornafirði núna og stefnir Hestamannafélagið Hornfirðingur á að halda vetrarmót í opnu tölti nk. sunnudag. Mótið hefst kl. 14 niður við Stekkhól og verður keppt í flokki barna 12 ára og yngri, flokki unglinga 13-16 ára, kvennaflokki, karlaflokki, og heldrimanna/kvenna flokki og er aldurstakmarkið þar 50 ára. Skráning er á staðnum í alla flokka og er skráningargjaldið kr. 500, nema í barnaflokk þar sem það er ókeypis. Mótið fer fram á beinni braut, það er riðið er í aðra áttina á hægu tölti en til baka með frjálsri ferð. Ef veðrið helst óbreitt verður mótið haldið á ís. Lesa meira
 
Nemendur FAS á leið í siglingu (mynd:FAS)

Opin vika í FAS - 26.02.2004 Febrúar

Mikið líf og fjör hefur verið í Framhaldsskóla Austur-Skaftafellssýslu undanfarið enda stendur nú yfir opin vika í skólanum. Hver dagur hefur byrjað á söng þar sem nemendur og kennarar hafa þanið raddböndin með miklum ágætum. Ýmsar kynningar hafa verið í gangi m.a. kynnti Hanný Heiler fyrirhugað reiðnámskeið, fulltrúi slysavarnafélagsins kynnti starfssemi félagsins, litboltaíþróttin var kynnt sem og skautaíþróttin, fjallað var um kajakasmíðar og kajakasiglingar og margt fleira. Hópastarf var með miklum blóma og voru m.a. blaðahópur, ljósmyndahópur og videóhópur. Framhaldsskólamót í Hornafjarðarmanna var haldið undir styrkri stjórn Alberts Eymundssonar. Sigurvegari á því móti var Bergþóra Ágústsdóttir Lesa meira
 
Stemning á loðnumiðunum (mynd:Jón Sölvi)

Stutt á loðnumiðin - 26.02.2004 Febrúar

Loðnuskipin eru nú á veiðum nokkrar mílur suður úr Hornafirði. Lítil veiði var í nótt og létu flest skipin reka, enda var leiðindaveður á miðunum. Í morgun gekk síðan veðrir niður og tók þá veiðin heldur að glæðast og er ágætis veiði á miðunum núna. Jóna Eðvalds SF-200 landaði í gær um 200 tonnum og Ásgrímur Halldórsson SF-250 landaði 300 tonnum. Í nótt landaði Svanur RE-45, 700 tonnum af loðnu í bræðsluna hjá Skeggey og s.l. laugardag landaði Oddeyrin EA-210, 730 tonnum. Björn Traustason verksmiðjustjóri sagðist vonast eftir að aukinn kraftur færi að færast í veiðarnar þannig að meira hráefni bærist í bræðsluna. Lesa meira
 
Hús björgunar og slökkviliðs í Öræfum

Öræfingar reisa 300 fermetra hús fyrir björgunar- og slökkviliðsbifreið - 26.02.2004 Febrúar

Stjórn Kára er ákaflega þakklát landeigendum í Freysnesi fyrir að leigja okkur land undir húsið segir Ragnar Frank Kristjánsson formaður Kára. Það er mat slökkviliðsstjóra Sveitarfélagsins Hornafjarðar að fyrirhuguð staðsetning fyrir slökkvibifreið sé mjög góð m.t.t. eldvarna, þá nálægt Skaftafelli og Svínafelli. Björgunarsveitarbíll kemur að góðum notum á innbæjum, því sveitin á annan bíl sem geymdur verður á Fagurhólsmýri. Oft eru veður válind í Öræfum og því mikilvægt að vera með björgunarsveitarbíl beggja vegna Sandfells. Lesa meira
 
Anna Mekkin, Katrín Ósk og Sólveig stóra systir

Stemning á Öskudaginn - 25.02.2004 Febrúar

Mikil stemning hefur verið á Hornafirði í dag enda bærinn fullur af grímubúnum krökkum sem skemmta sér og öðrum með söng og leik. Veðrið hefur leikið við bæjarbúa í dag, smá frost en bjart og stillt. Öskudagsball hófst í íþróttahúsinu kl. 17:00 og stendur til kl. 19:00 og þar á eflaust eftir að verða mikið fjör hjá ungum sem öldnum. SkjáVarp birtir myndir af krökkunum eins og gert hefur verið undanfarin ár og er það orðin fastur liður hjá fyrirtækinu enda mikil eftirvænting og spenningur hjá krökkunum að fá að sjá sig í sjónvarpinu. Einnig hafa verið opnaðar myndasíður á hornafjordur.is þar sem eru myndir teknar hjá SkjáVarpi og í Nesjaskóla. Lesa meira
 
Brjóstsykursframleiðslan í fullum gangi

Spennandi nám í frumkvöðlafræðum - 25.02.2004 Febrúar

Nemendur í frumkvöðlafræðum við Framhaldskólann í Austur-Skaftafellssýslu unnu nú nýverið að verkefni sem fólst í að stofna fyrirtæki með öllu því sem fylgir þvílíkri framkvæmd. Nemendurnir þurftu að afla hlutafjár, hefja framleiðslu á vöru og selja hana og að lokum gera reksturinn upp og helst að skila álitlegum hagnaði. Nemendur skiptust í tvo hópa, annar hópurinn skellti sér í bókaútgáfu en hinn hópurinn hóf framleiðslu á brjóstsykri. Lesa meira
 
Litla hjúkrunarkonan

Líf og fjör á Öskudag - 25.02.2004 Febrúar

Þá er Öskudagurinn runnin upp með öllu því fjöri sem honum fylgir. Í Nesjaskóla og Hafnarskóla mæta börnin í grímubúningum í skólann og skólastarfið snýst allt um þennan ágæta dag. Þorvaldur Viktorsson skólastjóri Nesjaskóla sagði að þar yrði margt sér til gamans gert, börn og kennarar væru grímubúin og vegleg skemmtun með tilheyrandi dansleik yrði í Mánagarði, mötuneyti skólans býður upp á hamborgara í tilefni dagsins og hápunkturinn yrði síðan þegar kötturinn yrði sleginn úr tunnunni. Lesa meira
 
Poppinu pakkað fyrir öskudaginn

Hjá dagvistun fatlaðra hafa menn nóg fyrir stafni - 24.02.2004 Febrúar

Hjá dagvistun fatlaðra á Hornafirði hafa menn alltaf nóg fyrir stafni. Einn liður í starfinu er að pakka vörum fyrir fyrirtæki gegn vægu gjaldi og hefur afraksturinn m.a. verið notaður til að fara í dagsferðir eða út að borða. Maren Ósk Sveinbjörnsdóttir fulltrúi málefna fatlaðra í sveitarfélaginu sagði að það hefði verið árið 2001 sem dagvistun fatlaðra bauð fyrst fyrirtækjum á staðnum að kaupa öskupoka eða að pakka sælgæti og dóti fyrir Öskudaginn. Lesa meira
 
Sumarhúsabyggð í Stafafellsfjöllum (úr myndasafni)

Aukið úrval sumarhúsalóða - 24.02.2004 Febrúar

Fyrir nokkru sótti Ulla R. Petersen landslagsarkitekt, fyrir hönd landeigenda í Freysnesi í Öræfum, um leyfi fyrir frístundabyggð á svæði sem er neðan við Freysnes. Anna María Ragnarsdóttir í Freysnesi segir að mikið hafi verið spurt um sumarhúsalóðir á svæðinu og þarna sé mjög hentugt svæði og vel gróið. Bæjarráð hefur nú samþykkt að deiliskipulag í Freysnesi verði auglýst, einnig deiliskipulag fyrir hluta skógræktarsvæðis í Haukafelli á Mýrum sem Skógræktarfélag Austur-Skaftafellssýslu á. Lesa meira
 
Veðrið á Höfn 24.febrúar 2004 kl.08.40

Vetur konungur staddur á Íslandi - 24.02.2004 Febrúar

Vetur konungur er aðeins að reyna að minna á sig þessa dagana og kl. 06:00 í morgun var 7 stiga frost og norðvestan 11 m/s í Akurnesi. Töluvert kaldara var á Hveravöllum á sama tíma en þar var 16 stiga frost og norðan 6 m/s. Í svona miklum vindi þá bítur frostið vel í andlitið og núna þurfa Hornfirðingar svo sannarlega að dúða sig vel, bíta á jaxlinn og halla sér vel upp í vindinn til að komast leiðar sinnar. Veðurhorfur fyrir næsta sólarhringinn gera ráð fyrir norðlægri átt, víðast 8-13 m/s og léttskýjað, en heldur hægari síðdegis. Frost 4 til 10 stig. Lesa meira
 
Bergárfoss eða Mígandi

Bergárfoss heitir í raun Mígandafoss - 23.02.2004 Febrúar

Leiðin inn að Bergá og upp að fossi er alltaf jafn vinsæl hjá Hafnarbúum allan ársins hring. Leiðin frá Lóns-vegamótum inn að og upp með Bergá er ein vinsælasta gönguleiðin í nágrenni Hafnar. Margir fallegir staðir eru við ána og í Bergárdalnum. Líklega vita ekki margir að fossinn sem í daglegu tali er kallaður Bergárfoss heitir Mígandafoss. Af þessum fossi dregur Mígandi, lækurinn nafn og hefur hann upphaflega komið úr gilinu þar sem fossinn er. Í örnefnaskrá segir; Bergá myndast á vatni úr þrem giljum í Bergárdal, Leyni sem er vestasta gilið, Miðfellsgili austan við Miðfell og nafnlausu gili sem kemur úr Botnum. Í því er hár foss sem heitir Mígandafoss, nú oft kallaður Bergárfoss. Lesa meira
 
Glæsilegt útlit á nýrri Esso stöð á Höfn

Breytingar hjá Esso Vesturbraut, ÁTVR flytur - 23.02.2004 Febrúar

Í fréttatilkynningu sem Olíufélagið Esso sendi frá sér kemur fram að gert hefur verið samkomulag við rekstraraðila ÁTVR á Höfn um flutning vínbúðarinnar í nýja þjónustustöð félagsins á Vesturbraut sem opnuð verður í sumar. Í samkomulaginu felst jafnframt að rekstraraðilar ÁTVR taki við rekstri stöðvarinnar af KASK. Með tilkomu vínbúðarinnar verður hið nýja hús fullnýtt og þjónusta við viðskiptavini félagsins á Höfn stórefld. Auk vínbúðar ÁTVR er gert ráð fyrir sölu á skyndibita, dagvörum, sérvöru s.s. grillbúnaði auk bílavöru. Lesa meira
 
Nemendur í 4. bekk taka við námsefni í Lífsleikni

Framtíðarkonur afhenda námsefni í Lífsleikni - 23.02.2004 Febrúar

Í morgun afhentu fulltrúar Slysavarnadeildarinnar Framtíðarinnar á Hornafirði, Hafnarskóla að gjöf námsefni í Lífsleikni sem er ætlað 4., 5. og 6. bekk grunnskólanna, námsefnið er gefið út af Slysavarnafélaginu Landsbjörg. Það voru nemendur í 4. bekk Hafnarskóla sem fengu afhent fyrstu eintökin. Markmið námsefnisins er m.a. að draga úr slysum hjá börnum og unglingum, virkja samvinnu heimilis og skóla í þessari baráttu og gera börn meðvituð um ábyrgð á eigin velferð. Höfundur efnisins er Unnur María Sólmundardóttir, kennari. Lesa meira
 
Séð yfir Leirusvæðið

Tilbúnar lóðir á Leirusvæðinu - 23.02.2004 Febrúar

Undanfarin ár hafa fá einbýlishús verið byggð á Hornafirði og ekki margt sem bendir til þess að mikil breyting verði þar á næstu misserin. Þrátt fyrir skort á byggingu einbýlishúsa hafa byggingarverktakar á staðnum haft töluvert að gera. Má nefna byggingu 4 íbúða húss við Víkurbraut á vegum Búseta og stækkun á vélasal hjá Skinney-Þinganes. Þá er Olíufélagið er að ráðast í byggingu nýs þjónustuhúss og hjá Olís er allt í fullum gangi við endurbyggingu á þeirra húsnæði. Lesa meira
 
Framkvæmdir við Hlíðará í Lóni

Framkvæmdir við Hlíðará í Lóni - 21.02.2004 Febrúar

Verktakafyrirtækið SG vélar ehf á Djúpavogi er byrjað á framkvæmdum við Hlíðará í Lóni. Búið er að rífa gömlu einbreiðu brúna sem þar var og í hennar stað kemur stálplöturæsi. Talsvert magn af efni þarf að fjarlægja þar sem lækka þarf árfarvegin fyrir ræsishólkinn sem er fyrirferðamikill eins og sjá má á myndinni. Brúin á Össurá í Lóni verður einnig rifin og samskonar stálplöturæsi sett í staðinn og eru það SG vélar ehf sem sjá um þá framkvæmd. Tilboð SG véla ehf í verkið var 14.257.900 kr. Verkinu á að vera lokið fyrir 15.maí 2004. Lesa meira
 
Smáhýsi á tjaldstæðinu á Höfn

Fleiri smáhýsi á tjaldstæðið - 21.02.2004 Febrúar

Náttból ehf. setti niður fimm smáhýsi á tjaldstæðinu á Höfn s.l. sumar og sjötta húsið býður flutnings á tjaldstæðið. Fyrirtækið áætlar að bæta 8-10 smáhýsum við áður en ferðamanna tíminn í sumar byrjar. Jón Stefán Friðriksson einn af eigendum Náttbóls segir að ekki sé ákveðið hvort þetta verða samskonar hús og þau sem komin eru, það kemur í ljós á næstu dögum, en verið er að skoða fleiri gerðir húsa. Ekki liggur fyrir hvort nýju húsin verða sett við hlið hinna sem fyrir eru, en það skýrist þegar deiliskipulag sem er að fara af stað verður komið. Lesa meira
 
Áhöfn þyrlunnar sótt á landingarsvæðið við Heilsugæslustöðina

Varnaliðsþyrla við Heilsugæslustöðina - 20.02.2004 Febrúar

Um kl. 17:30 í dag mátti heyra háar drunur í snjóhríðinni sem skall fyrirvaralaust á okkur Hafnarbúa, snjóhríðin var svo þétt á því augnabliki að ekki var hægt að greina hvaðan drunurnar komu og gera sér grein fyrir því hvað var þarna á ferðinni. Skýringin á þessu var hin eðlilegasta en drunurnar komu frá þyrlu varnaliðsins sem flaug mjög lágt yfir bæinn. Þyrlan er í sínu reglubundna æfingarflugi um landið en að þessu sinn ákvað áhöfnin að lenda á þyrlubrautinni við Heilbrigðisstofnunina og hafa nætursetu í góðu yfirlæti á Hótel Höfn. Lesa meira
 
Og svo fór að snjóa, mynd tekin kl. 16:18:00

Og svo fór að snjóa - 20.02.2004 Febrúar

Eins og hendi væri veifað hvarf febrúar blíðan sem leikið hafði við okkur Hornfirðinga undanfarið. Nákvæmlega klukkan 16:17:08 byrjaði að snjóa og veturinn gekk aftur í garð. Hinn sanni Hornfirðingur tekur þessum veðrabrigðum með stóískri ró, tuldrar kannski eitthvað ofaní hálsmálið hjá sér, hallar sér upp í vindinn og heldur göngunni áfram. Veðurstofan gerir ráð fyrir suðvestan og vestan 10-15 m/s og éljagangi, en heldur hægari austantil í fyrstu og léttskýjað að mestu. Norðvestan 8-13 m/s og léttskýjað í fyrramálið, en hægari síðdegis. Kólnandi veður, frost 1 til 6 stig á morgun. Lesa meira
 
Allt að verða klárt fyrir upplesturinn

Áheitalestur fyrir Samfésball - 20.02.2004 Febrúar

Nemendur í 9. og 10. bekk Heppuskóla standa fyrir áheitalestri milli kl. 13:00 og 23:00 í dag. Krakkarnir eru að safna í ferðasjóð á Samfésballið sem haldið verður í Laugardalshöll 27. febrúar n.k. Lesið verður úr verkum Þórbergs Þórðarsonar og fer upplesturinn fram í verslun 11-11, Miðbæ. Samfés stendur fyrir samtök félagsmiðstöðva á Íslandi og er komin hefð á að Þrykkjan, félagsmiðstöð unglinga á Hornafirði mæti með galvaskan hóp unglinga á þennan stórdansleik þar sem margar af bestu hljómsveitum landsins koma fram. Allt kostar þetta sitt og til að létta undir með kostunaraðilum (foreldrum) og sýna viljan í verki munu unglingarnir lesa fyrir gesti og gangandi í 10 tíma. Lesa meira
 
Jón Sölvi klár með bollurnar

Ég á þrjá hreyfihamlaða bræður - 20.02.2004 Febrúar

Í dag verður byrjað að selja miða á matarveisluna til styrktar fötluðum á Hornafirði. Veislan verður haldin í Nesjaskóla 10. apríl n.k. Aðeins er reiknað með að selja 100 miða, og því eins gott fyrir þá sem hafa hugsað sér að taka þátt í þessum glæsilega kvöldverð og styrkja um leið gott málefni að panta sér miða sem allra fyrst. Allir sem koma að veislunni gefa vinnu sína og fjölmörg fyrirtæki styrkja framtakið með vörum og þjónustu. Lesa meira
 
Frá Skaftafelli

Umsækendurnir, tíu konur og ellefu karlar - 20.02.2004 Febrúar

Þegar búið var að fara yfir umsóknir þeirra sem sóttu um stöðu sérfræðings í þjóðgarðinum í Skaftafelli kom í ljós að þær voru 21 en ekki 18 eins og áður var sagt frá. Umsækendurnir, tíu konur og ellefu karlar eru allir með langskólamenntun og mikla reynslu en þeir eru frá Akureyri, Ísafirði, höfuðborgarsvæðinu, Selfossi og nágrenni, Kirkjubæjarklaustri og Austur Skaftafellssýslu. Lesa meira
 
Ásgrímu Halldórsson SF-250 á miðunum. (mynd:Jón Sölvi)

Loðnukvótinn aukinn - 19.02.2004 Febrúar

Rannsóknarskipið Árni Friðriksson kom í gær til hafnar úr loðnuleiðangri sem staðið hafði yfir frá 11. febrúar. Í leiðangrinum mældust alls 930.000 tonn af kynþroska loðnu á miðunum útaf Austur- og Norðausturlandi. Eins og greint var frá í morgun á hornafjordur.is voru menn töluvert bjarsýnir á að loðnukvótinn yrði aukinn verulega eftir þennan leiðangur. Lesa meira
 
Furðuverur á ferð á Öskudag

Öskudagsball í íþróttahúsinu - 19.02.2004 Febrúar

Nú styttist í Öskudaginn og krakkarnir farnir að undirbúa sig fyrir bæjarröltið með viðeigandi búningum og söngatriðum. Nú hefur foreldraráð 5. og 6. flokks stelpna hjá Sindra ásamt Æskulýðs og tómstundaráði Hornafjarðar ákveðið að standa fyrir Öskudagsballi í íþróttahúsinu milli kl. 17 og 19 n.k. miðvikudag. Börn á öllum aldri eru velkomin á ballið og verður frítt inn. Þetta er þarft og gott framtak og vonandi verður Öskudagsball árlegur viðburður á Hornafirði héðan í frá. Lesa meira
 
Karlarnir eru í meirihluta

Fleiri karlar en konur á Hornafirði - 19.02.2004 Fréttir

Samkvæmt tölum Hagstofunnar voru íbúar í Sveitarfélaginu Hornafirði 2.304 þann 31. desember 2003. Íbúum sveitarfélagsins hefur því fækkað um 28 á milli ára. Kynjaskipting í sveitarfélaginu er konum heldur í hag að margra mati, en konur eru 1.104 á móti 1.200 karlmönnum. Fjölmennasti árgangurinn er fæddur 1991, samtals 53 einstaklingar, 30 karlar og 23 konur. Fast á hæla þeim koma síðan þeir sem eru fæddir 1988 samtals 49 einstaklingar. Íbúar í sveitarfélaginu 67 ára og eldri eru 253 samkvæmt sömu heimildum og eru karlarnir aðeins fleiri eða 129 á móti 124 konum. Lesa meira
 
Menn verða hrikalega sterkir á loðnunni (mynd:Jón Sölvi)

Verður loðnukvótinn aukinn um 250 þúsund tonn? - 19.02.2004 Febrúar

Nýjustu fréttir úr loðnuleiðangri Hafrannsóknarstofnunar herma að um verulega aukningu gæti orðið að ræða í úthlutun loðnukvóta. Bjartsýnustu menn tala um allt að 250 þúsund tonna aukningu, en það ætti að skýrast á næstu dögum hver loka niðurstaðan verður. Samkvæmt tölum frá Fiskistofu eru nú óveidd um 256 þúsund tonn af loðnu og ef kvótaaukningin fer eins bjartsýnustu menn spá þá eru næg verkefni framundan bæði í veiðum og vinnslu á loðnu. Ágætis veiði hefur verið á loðnumiðunum undanfarið. Ásgrímur Halldórsson SF-250 landaði í gær 800 tonnum af loðnu og var stefnt aftur á miðinn í gær en vegna brælu á loðnumiðunum hélt hann til hafnar á Djúpavogi ásamt Jónu Eðvalds. Lesa meira
 
Litbolti er mjög vinsæl íþrótt

Litboltafélag á Höfn - 18.02.2004 Febrúar

Stofnun Litboltafélags Hornafjarðar er vel á veg komið og vantar bara virðisaukanúmerið segir Gunnar Ingi Valgeirsson einn af fjórum stofnendum og hann á von á að félagið verði formlega stofnað fyrir lok þessa mánaðar. Hvers konar leikur er litbolti? Þetta er eiginlega stríðsleikur segir Gunnar Ingi, notaðar eru byssur til að skjóta kúlum sem gefa frá sér lit eða málningu. Leikurinn byggist upp á því að skipt er í tvö lið sem keppa um landsvæði, virki eða eitthvað annað. Það sést vel hvar skotin hitta því þar verður málningarklessa eftir sem svo fer þegar rignir. Þetta er leikur líkt og tölvuleikir nema hann er raunverulegur, ekki alvöru kúlur en mikil hlaup og góð hreyfing. Lesa meira
 
(Úr myndasafni Kortagrunnur Vegagerðarinnar)

Upplýsingaskilti og merking gönguleiða - 18.02.2004 Febrúar

Unnið er að merkingu áninga-og áhugaverðra staða í Sveitarfélaginu Hornafirði og einnig verða sett upp skilti fyrir nokkra bæi sem eftir var að merkja. Sigurlaug Gissurardóttir í Árbæ hefur ásamt fleirum unnið ötullega að koma á merkingu gönguleiða í sýslunni og kortlagningu þeirra. “Við vonumst til að vegagerðin ljúki við nokkra áningastaði í viðbót á þessu ári en hún sér um að gera snyrtileg útskot með afmörkun við gönguleiðir og áhugaverða staði,” segir Sigurlaug. Setja á upp merki hvar hver sveit í sýslunni byrjar og verður það væntanlega komið fyrir sumarið og einnig eru nokkur stór fræðsluskilti í vinnslu. Lesa meira
 
Dómarinn sýndi líka snilldartakta

Fyrsti æfingaleikurinn - 18.02.2004 Febrúar

Meistaraflokkur karla hjá Sindra lék fyrsta æfingaleikin sinn fyrir komandi keppnistímabil s.l. sunnudagsmorgun á gervigrasvelli Leiknismanna í Reykjavík. Andstæðingurinn var lið Víkings frá Ólafsvík en þjálfari þeirra er Ejub Purisevic sem þjálfaði og lék með Sindra við góða orðstír fyrir nokkrum árum. Ekki riðu okkar menn feitum hesti frá þessari rimmu og lutu menn frekar illa í gras, en leiknum lauk með sigri Víkings 9 – 2. Þetta var fimmti æfingaleikur Víkings og mátti glöggt greina það í leik liðanna. Lesa meira
 
Geir Þorteinsson og smiðir hans

Esso semur við Geir Þorsteinsson byggingarmeistara - 17.02.2004 Febrúar

Byggingaframkvæmdir við nýjan söluskála Essó við Vesturbraut hefjast í lok þessa mánaðar. Verktaki við bygginguna er Geir Þorsteinsson byggingameistari. Þetta er stálgrindahús frá Finnlandi sem við setjum upp og á verkinu að vera að fullu lokið með plani og öllu tilheyrandi í júní í sumar. Í vetur hafa Geir og hans menn unnið við endurbyggingu á húsi Olís þar sem áður var smurstöð og verður þar glæsilegur söluskáli.Geir segir að þeir séu langt komnir með Olísskálann sem verður opnaður í apríl næstkomandi. Lesa meira
 
(Úr myndasafni) Hópur sjálfboðaliða í Skaftafelli ásamt Ragnari Frank

18 manns sóttu um stöðu sérfræðings við Þjóðgarðinn í Skaftafelli - 17.02.2004 Febrúar

Umsóknarfrestur um starf sérfræðings við Þjóðgarðinn í Skaftafelli rann út um miðjan febrúar og höfðu þá 18 manns sótt um stöðuna. “Þetta er einvala lið og allir þessir umsækjendur með góða menntun svo sem masderpróf í ferðamálafræðum og hinum og þessum fræðum svo það verður vandi að velja,” sagði Ragnar Frank þjóðgarðsvörður. Gengið verður frá ráðningu í starfið fyrir helgi. Ragnar segir engan skort á verkefnum í þjóðgarðinum og þessa dagana er verið að lagfæra húsin sem sjálfboðaliðarnir, sem koma á hverju sumri búa í. Ragnar er nýbúinn að fá greiningu yfir kostnað við þjóðgarðinn sjálfan og þar kemur fram að Skaftafells-þjóðgarður er með mestu sértekjurnar af öllum þjóðgörðum landsins og hagkvæmasta reksturinn. Lesa meira
 
Febrúar blíða á Hornafirði

Heilsuátak hjá Skinney-Þinganes - 17.02.2004 Febrúar

Vorið 2003 var byrjað að bjóða upp á vinnustaðanudd hjá Skinney-Þinganes og fer starfsfólkið tvisvar í mánuði í nudd hjá nuddmeistara þar sem áhersla er lögð á að draga úr þreytuverkjum. Þessi nýbreytni hefur gefið góða raun enda fátt betra við þreytuverkjum en gott nudd. Í ljósi þess hversu vel hefur tekist til með nuddið hefur fyrirtækið hvatt starfsfólk sitt til að huga enn betur að heilsunni. Til að hvetja starfsfólkið til dáða í heilsuátaki færði fyrirtækið því að gjöf heilsudagbók og viku í líkamsrækt hjá Sporthöllinni. Þetta er glæsilegt framtak hjá þessu öfluga fyrirtæki og góð og jákvæð hvatning til starfsmanna þess. Lesa meira
 
Jökulfell að lesta loðnuafurðir í dag

Aukinn loðnukvóti - 16.02.2004 Febrúar

Nú er orðið ljóst að loðnukvótinn fyrir þetta fiskveiðiár verður aukinn á næstunni. Fram kom hjá Árni M. Mathiesen, sjávarútvegsráðherra á Alþingi í dag að reikna mætti með aukningu loðnukvótans. Þessi aukning kemur í framhaldi af leiðangri rannsóknarskipsins Árna Friðrikssonar í síðustu viku. Reikna má því að aukningin verði vel yfir hundrað þúsund tonn og heildarkvótinn á loðnuvertíðinni verði því um 800.000 tonn. Samkvæmt upplýsingum frá Samtökum fiskvinnslustöðva hefur mestum loðnuafla verið landað hjá Síldarvinnslunni í Neskaupstað eða um 34.000 tonnum. Hjá Skinney-Þinganes hefur verið landað um 9.000 tonnum. Lesa meira
 
Veðrið á Höfn 16..02.2004 kl.13:00

Gluggar þvegnir og pússaðir - 16.02.2004 Febrúar

Blíðskaparveður hefur verið á Hornafirði undanfarið og ekki laust við að smá vorfiðringur hafi gert vart við sig hjá íbúum sveitarfélagsins. Trúlega þurfum við nú samt að bíða eitthvað lengur eftir hinu eina sanna Íslenska vori, sem stundum kemur og stundum ekki! Þvottaplönin hafa verið þéttsetin og þar keppast menn við að þrífa bílana sína og að því loknu er rokið heim, garðslangan dregin fram og gluggar þvegnir og pússaðir. Þá er lítið annað eftir en að sópa stræti og torg og vonandi fer götusópur bæjarins á stjá fljótlega og fullkomnar þrifin. Lesa meira
 
Jón Sölvi, matreiðslumeistari

Matreiðslumaður safnar fé til styrktar fötluðum - 16.02.2004 Febrúar

Þann 10. apríl n.k. verður haldin glæsileg styrktarveisla í Nesjaskóla. Það er Jón Sölvi Ólafsson matreiðslumaður sem stendur fyrir þessari veislu og er markmiðið að safna fé í þágu fatlaðra á Hornafirði. Boðið verður upp á fimm til sex rétta stórglæsilegan kvöldverð og verður hægt að taka á móti um 100 manns. Allt það fé sem safnast í tengslum við styrktarveisluna mun renna óskert til málefna fatlaðra. Stefnt er að því að gera styrktarveisluna að árvissum viðburði ef vel tekst til og að ári yrði hún þá haldin á nýjum stað. Að þessu sinni er stefnt að því að láta söfnunarféð renna til kaupa á lyftustól fyrir sundlaugina á Höfn. Í tilefni af styrktarveislunni hefur verið opnaður glæsilegur vefur, www.kokkur.is þar sem finna má allar upplýsingar um framtakið. Lesa meira
 
Haukafell

Ræktun á 1.317.500 trjáplöntum - 16.02.2004 Febrúar

Undirritaður hefur verið samningur milli Suðurlandsskóga og níu gróðrarstöðva um plöntuframleiðslu fyrir Suðurlandsskóga. Um er að ræða ræktun á 1.317.500 trjáplöntum sem afhentar verða vorið 2005 til gróðursetningar hjá skógarbændum. Ríkiskaup býður árlega út um 1/6 hluta framleiðslunnar fyrir Suðurlandsskóga þannig að framleiðendum gefst kostur á að framlengja árlega ræktunarsamninga allt að fimm sinnum án útboðs ef allt gengur eftir sem um er samið. Reiknað er með að gróðursetning fari fram á 200 lögbýlum innan vébanda Suðurlandsskóga á árinu 2005. Lesa meira
 
Bleik-nefur á minkabúinu á Klettabrekku

Um eitt þúsund minkalæður á Klettabrekku - 14.02.2004 Febrúar

Gott verð er á minkaskinnum á mörkuðum erlendis og mikil eftirspurn. Eina minkabúið sem eftir er starfandi í Hornafirði er hjá hjónunum Sigurði Bjarnasyni og Birnu Rafnkelsdóttur á Klettabrekku í Nesjum. Sigurður segir að minkaræktin gangi vel nema lágt gengi dollarans sé mjög óhagstætt fyrir íslenska loðdýrabændur því þeir fái skinnin eingöngu greidd í þeim gjaldmiðli. Skinnin frá þeim eru send til Danmerkur og þaðan eru þau seld til Bandaríkjanna. Lesa meira
 
Hressar og kátar á Markaðstorgi Hornafjarðar

Markaðstorg Hornafjarðar - 13.02.2004 Febrúar

Á morgun laugardag verður enn og aftur líf og fjör í Hornabæ en þar mun Markaðstog Hornafjarðar ráða ríkjum milli kl. 11 og 16. Að venju verður mikið af varning til sölu og engin þarf að fara svangur heim því krakkar í 7. bekk Hafnarskóla munu verða með veitingasölu og eflaust má finna eitthvað matarkyns í öðrum básum. Nemar í frumkvöðlafræðum við FAS munu hafa til sölu handunnin sætindi sem framleidd verða á staðnum og verður spennandi að fylgjast með og bragða á sælgætisgerðinni hjá þeim. Lesa meira
 
Stefán og Laufey við matarundirbúning

Bjart framundan í ferðaþjónustu, langir biðlistar eftir gistingu. - 13.02.2004 Febrúar

Útlit er á góðu ári hjá ferðaþjónustuaðilum í Austur-Skaftafellssýslu og lengingu ferðatíma. Gistinætur á sl. ári voru eitt þúsund fleiri hjá Ferðaþjónustunni á Smyrlabjörgum en árið áður. Þessi fjölgun er eingöngu utan háannatímans í júní, júlí og ágúst, þá er alltaf fullbókað segir Laufey Helgadóttir. Hún segir að ferðaþjónustan aukist með hverju ári og lengist í báða enda. Núna byrjar traffíkin 25.febrúar með komu hóps í sambandi við Batman-myndatökuna í Öræfum því allt gistipláss í Freysnesi er fullt. Lesa meira
 
Alltaf blíða á Hornafirði

Hálkan ekki lengur góð og gild afsökun - 12.02.2004 Febrúar

Sumarblíða er á Hornafirði þessa dagana. Götur og gangstéttir að verða auðar og fínar og því er hálkan ekki lengur góð og gild afsökun fyrir því að sleppa heilsubótargöngunni. Spá Veðurstofunnar til kl. 18 á morgun gerir ráð fyrir suðvestan 5-10 m/s og einhverri vætu í kvöld og nótt, vaxandi sunnanátt í fyrramálið, 10-15 m/s og fer að rigna síðdegis. Hiti 2 til 8 stig. Veðurstofan gerir ráð fyrir suðlægum áttum næstu vikuna en þó má búast við að hitastigið lækki eitthvað um helgina. Lesa meira
 

Bræðslukarlarnir berja lóminn - 12.02.2004 Febrúar

Jóna Eðvald er á leið til löndunar með um 300 tonn af loðnu. Ásgrímur Halldórsson er á leiðinni á miðin eftir löndun í gær. Loðnan gengur nú hratt upp að landinu og því styttist í að hægt verði að veiða hana í grunnnót. Veðurspá gerir ráð fyrir brælu á miðunum í kvöld og nótt en heldur betra veðri þegar líður á morgundaginn. Loðnuveiðar og loðnuleysi hafa í gegnum tíðina verið mikið og gott umræðuefni og hafa hagyrðingar þjóðarinnar ekki látið sitt eftir liggja. Lesa meira
 
Frækið fimleikafólk hjá Sindra

Íslandsmeistarar í fimleikum - 12.02.2004 Febrúar

Um síðustu helgi fór fram Íslandsmót í almennum fimleikum og var mótið haldið í Reykjavík. Fimleikadeild Sindra fór með fríðan og föngulegan hóp á mótið, alls 9 keppendur. Á laugardeginum var undankeppni fyrir sjálft Meistaramótið. Í undankeppninni stóðu krakkarnir okkar sig mjög vel og má nefna að Kristey Lilja Valgeirsdóttir varð í öðru sæti á trampolíni í öðru þrepi og Bryndís Rós Sigurjónsdóttir í þriðja sæti. Á sunnudeginum var síðan keppt á Íslandsmótinu og var árangur fimleikafólksins okkar hreint út sagt frábær. Lesa meira
 
Hreindýr í Lóni

Mikið af hreindýrum í Lóni - 11.02.2004 Febrúar

Óvenju mikið hefur verið af hreindýrum í Lóni í vetur. Benedikt Egilsson bóndi á Volaseli segir að stórir hópar hafi haldið sig í landi Volasels og þar í kring. Þetta eru sextíu – sjötíu dýr í stærri hópunum og þau koma heim á túnin, sum koma alveg heim að bæ. Þetta eru mikið fleiri hreindýr en ég hef séð hér í Lóni í mörg ár og bændur eru lítið hrifnir af því að fá þessar stórar hjarðir á túnin. Ekki voru til nýjar tölur yfir fjölda hreindýra í Lóni, en Skarphéðinn Þórisson hjá Náttúrustofu Austurlands segir að í vetrartalningu í nóvember 2002 hafi hreindýr á svæði átta (Lón og Nes) verið 162 í Lóni og 76 í Nesjum. Á svæði níu (Mýrar og Suðursveit), voru 56 dýr á Mýrum og 55 í Suðursveit en um 50 dýr vantaði af þeim fjölda sem talið var að væri á svæðinu. Lesa meira
 
Sævar og Guðný Guðleif, best hjá Sindra (mynd:Kristján Jónsson)

Guðný Guðleif gengin til liðs við KR - 11.02.2004 Febrúar

Ein af betri leikmönnum mfl. kvenna hjá Sindra, Guðný Guðleif Einarsdóttir er gengin til liðs við KR. Guðný var kosin besti leikmaður mfl. kvenna s.l. sumar og var einnig markhæst ásamt Soffíu Gunnarsdóttir. Þetta er mikil blóðtaka fyrir liðið en jafnframt spennandi tækifæri fyrir Guðnýju að spreyta sig meðal þeirra bestu. Eins og áður hefur komið fram er Karítas komin aftur heim eftir að hafa leikið með KR s.l. sumar og vonir eru bundnar við að Soffía mæti einnig til leiks í vor en hún skipti yfir í Stjörnuna í haust. Lesa meira
 
Hans tilbúin til köfunar (mynd sth.is)

Kafað í kuldanum - 10.02.2004 Febrúar

Hans Christensen kafari á Hornafirði skellti sér í kafarabúninginn í gær og kafaði við heldur kuldalegar aðstæður í Hornafjarðarhöfn. Fjarlægja þurfti botnstykki sem er fyrir straumlogg, undan Húnaröstinni og færa yfir í Ásgrím Halldórsson SF-250. Fram kom á heimasíðu Skinneyjar-Þinganess, sth.is að Hans hefði unnið verkið fljótt og örugglega og kuldalegar aðstæður hefðu ekki verið neitt til að kvarta yfir. Lesa meira
 
Birna og Christína á Seljavöllum með úrvals Hornafjarðarkartöflur

Færri kartöflusjúkdómar en annarsstaðar - 10.02.2004 Febrúar

Á nýafstöðnu fræðaþingi bænda sem fram fór í Reykjavík var meðal annars rætt um hlýnandi veðurfar og áhrif þess á ræktun hér á landi. Áhrifin hafa bæði jákvæð og neikvæð áhrif fyrir landbúnaðinn, ræktun verður meiri og bændur verða samkeppnisfærari með allskonar grænmeti og grös t.d. línrækt. Það neikvæða er að mikil hætta er á að sú sérstaða tapist, sem er heilnæm þróun á framleiðsluvöru út af lítilli úða- og efnanotkun því hlýnandi veðurfari fylgir hætta á að plöntusjúkdómar komi upp og nú þegar eru þeir ekki langt undan segir Grétar Þorkelsson starfsmaður Búnaðarsambands Austur-Skaftafellssýslu. Lesa meira
 
Björn Jónsson kann sitt fag

Bjartari tíð með vætu og hita - 09.02.2004 Febrúar

Starfsmenn áhaldahúss hafa haft í nógu að snúast í dag við að hreinsa snjó af götum og gangstéttum í bænum. Eftir snjókomu helgarinnar voru gangstéttar ill færar og því þrautarlending fyrir hin gangandi vegfaranda að nota götur bæjarins sem augljóslega eykur slysahættu í umferðinni. En nú er bjartari tíð með vætu og hita í vændum sem gleðja ætti bæði gangandi sem og akandi vegfarendur! Veðurstofan gerir ráð fyrir suðlægri átt, 5-10 m/s og rigning eða súld í kvöld. Vaxandi suðvestanátt í fyrramálið, 8-13 m/s nálægt hádegi, en hvessir heldur síðdegis. Hiti 3 til 8 stig síðdegis í dag og 5 til 10 á morgun. Það er því von á asahláku næstu dagana og gerir veðurspá ráð fyrir 4 – 10 stiga hita út vikuna. Lesa meira
 
Unnið að björgun farms og bíls

Miklar skemmdir á farmi - 09.02.2004 Febrúar

Eins og greint var frá í fréttum um helgina lentu bílstjórar á flutningabílum á leiðinni milli Hafnar og Reykjavíkur í miklum vandræðum vegna veðurs aðfaranótt laugardags. Í Suðursveit yfirgáfu bílstjórar bíla sína og fengu inn á sveitabæjum í nágreninu. Flutningabíll Samskipa sem var á leið til Egilsstaða endaði á hliðinni utanvegar í veðurhamnum. Talið er að aftanívagn bílsins hafi fokið á hliðina og dregið bílinn með sér. Engin var í bílnum þegar atvikið átti sér stað. Lesa meira
 
Allt á kafi í snjó

Loðnu landað á ný - 09.02.2004 Febrúar

Ásgrímur Halldórsson SF-250 kom í morgun með um 400 tonn af loðnu til Hornafjarðar. Jóna Eðvalds SF-200 er væntanleg til heimahafnar kl. 19:00 í dag með um 750 tonn. Á föstudaginn var skipað út hjá Skinney-Þinganes 230 tonnum af síldarafurðum í flutningaskipið Ice Lady sem fara eiga til Póllands og Litháen. Skipið hélt frá Hornafirði á föstudag en á laugardag fékk skipið á sig brotsjó í vonsku veðri vestur af Færeyjum, 15-20 gráðu halli kom á skipið við óhappið. Ice Lady sigld fyrir eigin vélarafli til Þórshafnar í Færeyjum og kom þangað upp úr hádegi í gær. Lesa meira
 
Dansað á leikskólanum

Leikskólarnir taka þátt í Þorrablótshaldi - 07.02.2004 Febrúar

Leikskólarnir á Höfn létu ekki sitt eftir liggja í þorrablótshaldi. Í gær voru þorrablót í Krakkakoti og Lönguhólum með alvöru þorramat á boðstólum. Björn Arnarson safnvörður kom í heimsókn og sýndi krökkunum gamla muni af byggðasafninu og sagði þeim til hvers þeir voru notaðir. Krakkarnir fengu að sjá brúðuleikhús og heyra sitthvað um þorrann og á eftir var dansað, og það leyndi sér ekki að krakkarnir höfðu lært heilmikið á dansnámskeiðinu í vetur. Tæplega 60 börn eru á Krakkakoti og þar hefur undanfarið verið hægt að sinna öllum umsóknum um pláss segir Snæfríður Svavarsdóttir leikskólastjóri. Lesa meira
 
Veðrið á Höfn laugardaginn 7.febrúar kl.09.40

Björgunarfélagið sótti mann á Skeiðarársand í nótt - 07.02.2004 Febrúar

Mikið annríki hefur verið hjá Björgunarfélagi Hornafjarðar í óveðrinu sem gengur nú yfir. Samkvæmt beiðni frá Lögreglunni á Höfn þá var maður sóttur sem var fastur í bíl sínum á Skeiðarársandi um tvöleitið í nótt. Einnig aðstoðuðu björgunarsveitarmenn starfsfólk heilbrigðisstofnunar við að koma starfsmönnum á vinnustað og þeim sem voru búnir að vinna til síns heima við vaktaskiptin í morgun. Vegna ófærðarinnar hafa margir fest bíla sína og er nú verið að aðstoða við að ná þeim lausum. Lesa meira
 
Veðrið á Höfn 6.febrúar kl.15.45

Varúð í hálkunni - 06.02.2004 Febrúar

Mikil hálka er hér á suðaustur hluta landsins þessa daga og hafa margir fengið slæmar byltur og jafnvel brot. Á heilsugæslustöðinni fengust þær upplýsingar að komum þangað vegna beinbrota í hálkunni hefði fjölgað nokkuð og full ástæða væri til að vara fólk við ef það þarf að fara út , það er jafnvel hægt að detta á leið út í bílinn. Snjófölið sem kom í morgun gerir færðina enn varasamari og útlit er á að þetta hálkuástand muni verða næstu daga. Lesa meira
 
Mynd frá 1977 þegar Björgunarfélagið og Framtíðin afhentu Slysavarnarfélagshúsið til eignar (Mynd Framtíðin)

Slysavarnadeildin Framtíðin 50 ára - 06.02.2004 Febrúar

Slysavarnadeildin Framtíðin á Hornafirði verður 50 ára 7. febrúar nk. Kvennadeild Slysavarnafélagsins á Höfn var stofnuð 7. febr. 1954 og hlaut hún nafnið Framtíðin. Stofnfundurinn var haldinn í barnaskólanum og voru stofnfélagar 40. Fyrstu stjórnina skipuðu : Jónína Brunnan, Sólveig Jónsdóttir, Sigríður Bjarnadóttir, Hrafnhildur Gísladóttir og Marta Imsland. Félagskonur í slysavarnadeildinni í dag eru um eitt hundrað. Í tilefnis afmælisins verður afmælisfundur 19.mars n.k. Lesa meira
 
Steinþór og Jón Stefán afhenda Dóru Björgu verðlaun

Slökkviliðsmenn afhenda verðlaun - 06.02.2004 Febrúar

Landsamband slökkviliðs-og sjúkraflutningamanna efndi til árlegrar Eldvarnaviku 24.nóv. til 1.des. á síðasta ári í samstarfi við Brunamálastofnun, slökkvilið höfuðborgarsvæðisins, Neyðarlínuna /112 og fleiri aðila . Slökkviliðsmenn heimsóttu alla grunnskóla landsins hver á sínu starfsvæði og lögðu fyrir nemendur þriðja bekkjar sérstakt verkefni ásamt eldvarnargetraun og ræddu um eldvarnir og öryggismál. Lesa meira
 
Glæsilegt útlit á nýrri Esso stöð á Höfn

Olíufélagið hyggur á framkvæmdir - 06.02.2004 Febrúar

Olíufélagið hefur sent Sveitarfélaginu Hornafirði til kynningar tillögu að byggingu þjónustuhúss, uppsetningu dæla og skyggnis á lóðinni að Vesturbraut 1. Þjónustuhúsið verður um 200 fermetra og til viðbótar þeirri þjónustu sem boðið er upp á í dag verður möguleiki á sölu skyndibita og hugsanlega verður einhver meiri starfssemi í húsinu. Heimir Sigurðsson framkvæmdastjóri neytendasviðs Olíufélagsins sagði að það hefði staðið til í mörg ár að byggja nýtt þjónustuhús á Hornafirði og nú er verið að hrinda því verki í framkvæmd. Lesa meira
 
Glæsilega skreyttur salur

Þorrablót Heppuskóla - 05.02.2004 Febrúar

Hið árlega þorrablót Heppuskóla verður haldið í Mánagarði í kvöld. Boðið verður upp á hefðbundinn þorramat. Nemendur skólans bjóða upp á fjölbreytta skemmtidagskrá þar sem dregin verða fram spaugileg atriði úr skólalífinu og trúlega fá kennarar smá skot frá skemmtinefndinni. Það hefur verið í nógu að snúast hjá skemmti- og skreytinganefnd þorrablótsins í dag. Skemmtidagskrá æfð af mikilli innlifun og salurinn í Mánagarði skreyttur á glæsilegan hátt. Lesa meira
 
Loðnuskip í höfn

Loðnukvótinn aukinn - 05.02.2004 Febrúar

Sjávarútvegsráðuneytið hefur að tillögu Hafrannsóknarstofnunar aukið loðnukvótann úr 555 þúsund tonnum í 635 þúsund tonn. Þessi aukning kemur í framhaldi af mælingum hafrannsóknarskipsins Árna Friðrikssonar út af austur og norðausturlandi. Alls mældust 780 þúsund tonn af kynþroska loðnu og er miðað við að 400 þúsund tonn verði skilin eftir til hrygningar. Á síðustu vertíð var leyfilegt að veiða 765 þúsund tonn og verður því skerðingin milli ára 130 þúsund tonn. Lesa meira
 
Hornafjarðarós, endurbættur með varnargörðum (Mynd SMS)

Viðhald innsiglinga og rof við Jökulsá á Breiðamerkusandi meðal efnis á Alþjóðlegri ráðstefnu á Höfn Hornafirði - 05.02.2004 Febrúar

Önnur alþjóðlega Íslenska strandráðstefnan (Second International Coastal symposium in Iceland) verður haldin á Höfn Hornafirði 5.-8. júní árið 2005. Árið 1994 var fyrsta ráðstefnan haldin á Höfn og komu þá saman vísindamenn víðsvegar að úr heiminum og ræddu margskonar mál sem tengjast erfiðum aðstæðum eins og þekkjast við Hornarfjarðarós og suðurströnd Íslands. Lesa meira
 
Þorrablótsnefndin 2004 ásamt veislustjórum

Laugardagskvöld með Gísla Marteini og pabba hans - 04.02.2004 Fréttir Þorrablót

Um 250 manns mættu á Hornfirðingaþorrablót brottfluttra sem var haldið í Glæsibæ s.l. laugardag. Þótti maturinn frábær hjá þeim Árna Stefáni og Gauta. Gunnar Sighvatss sem var heiðursgestur á blótinu ásamt Stefaníu konu sinni flutti ansi skemmtilegar sögur frá Hornafirði. Fulltrúar Grímsstaðarættarinnar í hlutverki veislustjóra þetta árið þeir Baldur Gísla og Gísli Marteinn sonur hans stóðu sína plikt með sóma og voru mjög skemmtilegir. Lesa meira
 
Við höfnina 4. febrúar

Ágætis veður - 04.02.2004 Febrúar

Ágætis veður er á Hornafirði þessa stundina og gerir Veðurstofan ráð fyrir norðaustanátt, 5-8 m/s. Hiti 0 til 5 stig en frystir seint á morgun. Veðurhorfur á landinu næstu daga: Fremur hægar norðlægar áttir á föstudag og laugardag. Éljagangur á norðanverðu landinu en annars úrkomulítið. Kalt í veðri. Vaxandi suðaustanátt vestantil á sunnudag, þykknar upp og dregur frosti. Annars hægt og kalt veður. Lesa meira
 
Nýsköpunar hetjur Hafnarskóla

Nýsköpunarkeppni grunnskólanemenda - 04.02.2004 Febrúar

Nú er hafin nýsköpunarkeppni grunnskólanema fyrir árið 2004. Að sögn Eiríks Hanssonar kennara við Hafnarskóla, sem haft hefur veg og vanda að nýsköpunarverkefninu við skólann eru nemendur komnir á fulla ferð í hugmyndavinnu og er áhuginn mikill. Á síðasta ári áttu nemendur Hafnarskóla fimm hugmyndir af þeim 52 sem komust áfram í keppninni. Nemendur Hafnarskóla voru einnig duglegust við að senda inn hugmyndir í keppnina á s.l. ári, en alls bárust 1961 hugmynd frá 39 skólum og þar af 206 hugmyndir frá hugmyndaríkum nemendum skólans. Lesa meira
 
Handhafar Hornafjarðarmánans 2004

Hinn skaftfellski Hornafjarðarmáni - 04.02.2004 Febrúar

Á þorrablóti Hornafirðinga á höfuðborgarsvæðinu fór fram í fyrsta skipti afhending hins skaftfellska Hornafjarðarmána, það er orða sem má sæma innlenda eða erlenda einstaklinga fyrir einstaklega vel unnin störf í þágu Hornafjarðar eða á alþjóðavettvangi. Í forsetabréfi mánans segir m.a. að "orðuna skal bera við hátíðleg tækifæri svo eftir verði tekið. Hátíðleg tækifæri eru í þessum skilningi meðal annars, jól, páskar og þorrablót. Leyfilegt er að bera aðrar orður samtímis Hornafjarðarmánanum svo sem stórriddarakross hinnar íslensku fálkaorðu, en þá ber að gæta þess að slíkt glingur skyggi ekki á mánann. Lesa meira
 
Þorrablótsnefnd Nes og Lónmanna 2004

Hátt í 200 manns mættu á blót Nesja og Lónmanna - 03.02.2004 Febrúar

Þorrablót Nesja og Lónmanna sem var í Mánagarði um síðustu helgi tókst með miklum ágætum. Hjalti Egilsson formaður sagði að hátt í tvö hundruð manns hefði komið og fólk hefði skemmt sér mjög vel og þeir sem séð hefðu um annála, minni karla og kvenna og önnur gamanmál hefðu farið á kostum. Hljómsveitin Huldumenn lék fyrir dansi og stóðu þeir sig hreint frábærlega og tóku ekki nema tvisvar sinnum fimm mínútna hvíld á þessum rúmlega fjórum og hálfa tíma sem þeir spiluðu. Lesa meira
 
Tekist á í þriggja manna úrslitunum

Jón Hilmar Íslandsmeistari í Hornafjarðarmanna - 03.02.2004 Febrúar

Fastur liður í tengslum við þorrablót Hornafirðinga á höfuðborgarsvæðinu er Íslandsmeistaramótið í Hornafjarðarmanna. Mótið fór fram í Skaftfellingabúð s.l. föstudag og voru keppendur 36. Þriggja manna úrslit fóru síðan sem fram á Þorrablótinu sem haldið var laugardagskvöldið í Ásgarði í Glæsibæ og var það Jón Hilmar Gunnarsson frá Þinganesi sem hneppti fyrsta sætið, Brynjar Eymundsson (kokkur) annar og Jóhanna Erlingsdóttir (kona Páls Garðarssonar) í þriðja eftir harða og skemmtilega keppni. Lesa meira
 
Jóhann Ólafsson forstöðumaður HSSA

Læknisþjónusta hjá HSSA í febrúar og mars - 03.02.2004 Febrúar

Baldur P.Thorstensen, sem verið hefur heimilislæknir Hornfirðinga um átta ára skeið hefur sagt starfi sínu lausu og mun hann hætta störfum eftir næstu mánaðarmót. Eins hefur Berglind G. Libungan, sem starfað hefur hjá HSSA síðan í október s.l. hætt störfum. Jóhann Ólafsson forstöðumaður Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands segir að tekist hafi að fá lækna á heilsugæslustöðina næstu vikurnar. Lesa meira
 
Veðrið á Höfn 3.febrúar kl. 11:30

Skólahaldi aflýst og póstbílar bíða veðurs - 03.02.2004 Febrúar

Eins og fram hefur komið hefur veður verið vont í Öræfum. Skólahaldi í Hofgarði var aflýst í morgun vegna hvassviðris. Póstbíllinn að sunnan komst í Freysnes í nótt og póstbíllinn að austan á Höfn og bíða báðir að veður lægi. Flutningabílar bíða á Fagurhólsmýri eftir að komast austur og flutningabílar að austan bíða á Höfn. Lesa meira
 
Veðrið á Höfn 3.febrúar kl.09:00

Bræla á loðnumiðum og 38 m/s í Öræfum - 03.02.2004 Febrúar

Öll skip Skinney-Þinganess eru í höfn vegna brælu á miðunum. Spá veðurstofunnar gerir ráð fyrir norðaustan 18-23 m/s með slyddu eða rigningu fram eftir degi, hiti 0-5 stig. Í morgun var víðast skýjað á landinu og slydda og snjókoma fyrir austan. Hlýjast var í Skaftafelli en þar var 5 stiga hiti. Að sögn Vegagerðarinnar þá er mikil ófærð á vegum og alls ekki ferðafært enda vindur allt að 38 m/s í Öræfum. Líkt og í gær þá má sjá og heyra snjómoksturstæki hreinsa götur Hafnar. Lesa meira
 
Hanni Heiler

Reiðmennska,ný námsgrein sem kennd verður í FAS - 02.02.2004 Febrúar

Reiðmennska er ný námsgrein sem kennd verður í Framhaldsskólanum í Austur-Skaftafellssýslu í mars og apríl n.k. Náminu er skipt niður í fimm stig og verða þrjú fyrstu stigin tekin fyrir í vetur. Kennari er Hanní Heiler og er kennsla bæði bókleg og verkleg. Þetta nám er á vegum Menntamálaráðuneytisins og á að koma inn í alla grunn- og framhaldsskóla í landinu og er þetta annar skólinn sem býður upp á þessa kennslu segir Hanní. Þeir sem fara í þetta nám geta fengið viðurkenndar einingar í framhaldsskólanum og fimm stigin veita réttindi inn í hestabraut Hólaskóla. Hægt er að taka bóklega hluta námsins í fjarnámi. Lesa meira
 
Heimir á fullu í snjómokstri

Allt á kafi í snjó á hornfirskan mælikvarða - 02.02.2004 Febrúar

Töluverð snjókoma hefur verið á Hornafirði frá því seinni partin í gær og hefur verið mikið að gera í snjómokstri hjá starfsmönnum sveitarfélagsins sem og hjá Vegagerðinni. Veðurspáin gerir ráð fyrir norðaustan 8-13 m/s og snjókomu, en léttskýjað með köflum vestantil. Vaxandi norðaustlæg átt síðdegis, víða 18-23 í kvöld og slydda eða rigning. Frost 0 til 6 stig, en 0 til 4 stiga hiti með kvöldinu. Þæfingsfærð er á vegum í nágreni Hafnar en Vegagerðin vinnur að hreinsun vega þessa stundina. Lesa meira
 
Hulda, Ari og Sindri

Unnið að stofnun skautafélags - 02.02.2004 Febrúar

Í gær var boðað til fundar í Sindrabæ þar sem kannaður var áhuga á því að stofna skautafélag á Hornafirði. Hátt í fjörutíu manns mættu á fundin bæði krakkar og fullorðnir. Ari Þorsteinsson setti fundin og fór örfáum orðum um hugmyndina að stofnun skautafélags og hvert framhaldið yrði ef áhugi væri til staðar. Einnig sagði Ari frá ótrúlega góðum og jákvæðum viðbrögðum sem hann hefði fengið frá skautafélögum fyrir sunnan og norðan. Síðan var orðið gefið frjálst og voru margir á mælenda skrá bæði þeir yngstu sem og öldungarnir í hópnum. Á fundinum var skipaður undirbúningshópur um stofnun skautafélags. Undirbúningshópinn skipa Ari Þorsteinsson, Hulda Laxdal og Sindri Ragnarsson. Lesa meira
 
Ísinn getur verið varasamur

Unglingum bjargað til lands - 01.02.2004 Febrúar

Í dag var Björgunarfélag Hornafjarðar kallað út til að aðstoða þrjá unglinga sem höfðu skellt sér í göngutúr út á ísilagðan sjóinn við golfvöllinn. Að sögn Björns Inga Jónssonar formanns björgunarfélagsins fóru tveir björgunarsveitarmenn íklæddir flotgöllum út á ísinn og hjálpuðu unglingunum til lands og varð engum meint af. Björn Ingi sagði að töluverður viðbúnaður hefði verið af hálfu björgunarfélagsins og hefði fjöldi björgunarsveitarmanna verið kallaður út og bátur verið klár í fjörunni ef ísinn hefði brostið undan þeim. Lesa meira
 

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica