Truflanir hafa verið á GSM-sambandi í Sveitarfélaginu Hornafirði, Austur- og N-Austurlandi frá því í morgun. Að sögn Evu Magnúsdóttur, upplýsingafulltrúa Símans þá er verið að færa samböndin yfir á aðrar leiðir á meðan leitað er að orsök bilunarinnar. Bilunin hefur haft áhrif á GSM-stöðvar á Höfn, Brekku, Bakkafirði, Mývatni, Auðbjargarstöðum, Ásbyrgi og Grímsey.
Lesa meira