Ríki Vatnajökuls - Desember
    <description>Ríki Vatnajökuls</description>
    <ttl>40</ttl>
Kveikt í áramótabrennunni kl. 20:30 (frestað)
      <description>Unglingadeildin ásamt félögum í Björgunarfélagi Hornafjarðar hafa safnað saman í brennuna sem er inn við Mjólkurstöð á sama stað og í fyrra og er hún álíka vegleg og þá. Þeir nutu aðstoðar frá Guðna Karls og Nonna Páls við að flytja efnið á brennuna sem kom víða að og m.a. frá Skinney-Þinganes, brettaverksmiðjunni og voru tré úr skógi Einars Hálfdánar einnig sett á brennuna. Enginn brennukóngur hefur verið ráðinn eftir að Árni Vignison heitinn sá um það starf.</description>
Shellskálinn rifinn
      <description>Í dag var hafist handa við að rífa Shellskálann við Hafnarbraut og sér Rósaberg um framkvæmdina. Shellskálinn hefur í gegnum tíðina þjónað Hornfirðingum sem söluskáli og veitingastaður og eiga margir góðar minningar þaðan, bæði í starfi og leik. Shellskálinn sem var í eigu Skeljungs hefur ekki hýst neina starfssemi s.l. þrjú ár og hefur á þeim tíma alls ekki verið nein bæjarprýði, þar sem hann stendur við aðalgötuna, enda ekkert verið hirt um húsið og því löngu orðið tímabært að fjarlægja það.</description>
      <alt>Shellskálinn rifinn</alt>
Jóla-fréttir frá Hornafirði
      <description>Hornfirðingar hafa átt friðsöm og slysalaus jól að því best er vitað og að sögn lögreglu  hafa engin umferðaróhöpp orðið. Veður hefur verið hið fegursta, dálítið frost og snjóföl á jörðu. Ólafur Sigurðsson í Svínafelli í Öræfum sagði að þar hafi verið smá snjóföl jóladagana svona rétt til að gera allt enn fallegra og jólaskreytingar í sveitinni aukast með hverju árinu.</description>
Flugeldasalan fer vel af stað
      <description>Eins og heyra má á Höfn þá er byrjað að selja flugelda hjá Björgunarfélagi Hornafjarðar og alltaf nokkrir góður kaupendur sem skjóta upp “prufuflugeldum” sem lýsa skemmtilega upp nánasta nágrenni og minna okkur á að ármótin eru á næsta leiti. Búist er við mikilli sölu flugelda enda fer salan mjög vel af stað. Björgunarfélagið mun standa fyrir sýningu á gamlárskvöld eins og undanfarin ár og verður sýningin í ár ein þeirra stærstu sem Björgunarfélagið hefur haldið.</description>
Albert býður ungu fólki í Nýheima
      <description>Albert Eymundsson bæjarstjóri bauð ungmennum á Hornafirði sem eru á framhaldsskólaaldri til kynningarfundar í Nýheimum í dag. Rætt var um Frumkvöðlasetrið í Nýheimum og kynnti Ari Þorsteinsson framkvæmdastjóri starfsemina þar og þá möguleika sem þar væru fyrir hendi. Eyjólfur Guðmundsson skólameistari FAS kynnti hugmynd um frumkvöðlafræðslu og möguleika á fjarnámi gegnum framhaldsskólann. Gísli Sverrir Árnason forstöðumaður Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar lýsti starfsemi menningarmiðstöðvarinnar, fjölbreyttri starfsemi hennar og  þeim fjölmörgu verkefnum sem þar væru framundan.</description>
Tökur á Batman kvikmynd í Öræfum
      <description>Í byrjun janúar hefst undirbúningur að töku Batman-kvikmyndar í Öræfum en stefnt er að hefja myndatöku seinni hluta febrúar. Framleiðandi myndarinnar eru Warner brothers og mun Saga Film sér um myndatökur hér á landi. Reiknað er með að um 150-200 manns muni taka þátt í undirbúningi og töku myndarinnar í Öræfum. Saga Film sá einnig um undirbúning og umsjón við upptöku á nýjustu James Bond myndinni og að sögn talsmanns fyrirtækisins þá verður vinnan við Batman kvikmyndina ekki eins tæknilega viðamikil og tökurnar á Bond sem fóru fram við Jökulsárlón.</description>
Það er gaman á Þorláksmessu
      <description>Í dag Þorláksmessu verður Hafnarkirkja opin milli kl. 16 og 18. Tekið verður á móti söfnunarbaukum Hjálparstarfs kirkjunnar, Spilafjelagið verður í jólasveiflu, seld verða friðarkerti og boðið upp á kaffi og eitthvað sætt með. Lúðrasveit Hornafjarðar mun skemmta gestum og gangandi víðsvegar um bæinn og svo er von á jólasveinunum á bæjarrölti milli kl. 17 og 19. Félagar í karlakórnum Jökli munu svo þenja raddböndin í Miðbæ í kvöld kl. 20:30. Það ætti því engum að þurfa að leiðast á búðarröltinu í dag og í kvöld, en flestar verslanir á Hornafirði eru opnar til kl. 23:00.</description>
Evrópuverkefnið í fullum gangi
      <description>Nemendur Hafnarskóla eru þátttakendur í evrópuverkefninu “School for the future” og nú hafa nemendurnir, foreldrar þeirra og kennarar skrifað inn á heimasíðu verkefnisins þar sem þau skrifa um jólin og lestur. Eitt af því sem krakkarnir hafa skrifað um eru jólasveinarnir okkar og þar sem þetta er evrópuverkefni er allt skrifað á ensku og þá heita sveinarnir okkar þrettán: Sheep worrier, Gully gawk, Stubby, Spoon licker, Pot licker, Bowl licker, Door slammer, Skyr glutton, Sausage stealer, Window peeper, Door sniffer, Meat hook og Candle beggar.</description>
Bráðabirgðatölur um íbúafjölda
      <description>Hagstofa Íslands hefur sent frá sér bráðabirgðatölur um íbúafjölda á Íslandi hinn 1. desember sl. Íbúar á landinu öllu voru þá 290.490 sem er fjölgun milli ára um 0,79% sem er heldur meiri fjölgun en í fyrra en talsvert minni en áratuginn þar á undan. Samkvæmt bráðabirgðatölum frá Hagstofunni eru íbúar Hornafjarðar 2.304 1. desember 2003 en voru 2.332 árið 2002, sem er fækkun um 28 íbúa.</description>
Hornafjarðarhöfn komin í jólabúninginn
      <description>Hornafjarðarhöfn er komin í jólabúning og ljósaskreytingar komnar á bátana. Starfsfólk  hjá Skinney Þinganesi fór í jólafrí í gær og mætir ekki til vinnu fyrr en 29. des.
Tvö af skipum Skinneyjar Þinganess eru í Hafnarfirði, annað í slipp en hitt í vélarupptekt en áhafnir komnar heim. Það er búið að vera mjög mikið að gera hjá okkur í vetur og vinna samfelld og því enn kærkomnara fyrir fólkið að komast tímanlega í jólafrí sagði Gunnar Ásgeirsson.</description>
Friðarloginn frá Betlehem
      <description>Í gær komu skátar með friðarlogann frá Betlehem í Hafnarskóla. Þar gáfu þeir nemendum afleggjara af loganum sem logað hefur óslitið frá því um 300 e. K. er hann var kveiktur í Betlehem. Á miðvikudagskvöldið gáfu þeir einnig afleggjara af loganum á tónleikum unga fólksins í Nýheimum. Friðarloginn frá  Betlehem er: Gjöf Ljós sjálfstæðis Ljós samhyggju Ljós friðar og vináttu Ljós þeirra sem hjálpa Ljós fyrir þjáða og einmana Ljós skilnings á þörfum hvers annars Notaðu það þar sem þú vilt kveikja ljós öðrum til gleði!</description>
Jólatónleikar karlakórsins
      <description>Á sunnudaginn mun karlakórinn Jökull halda sína árlegu jólatónleika í Hafnarkirkju. Á tónleikunum koma fram auk karlakórsins, Kvennakór Hornafjarðar, Samkór Hornafjarðar, Gleðigjafar, kór aldraðra, Barnakór Hafnarkirkju og Lúðrasveit Hornafjarðar. Í gegnum tíðina hefur aðgangseyrir af tónleikunum runnið til góðgerðamála en að þessu sinni mun hann renna til kaupa á konsertflyglinum í Nýheimum. Stjórnandi karlakórsins er Jóhann Morávek og undirleikari Guðlaug Hestnes.</description>
Jólasveinar á ferðinni
      <description>Í dag komu þrír jólasveinar í óvænta heimsókn í bókasafnið. Svo heppilega vildi til að fjöldi barna var mættur í sögustund og voru þau býsna kát er sveinarnir birtust. Kertasníkir, Gluggagægir og Stekkjastaur spjölluðu við krakkana og svo var sungið og gengið í kringum jólatréð. Þeir félagar sögðust hafa verið mikið á ferðinni og haft meira en nóg að gera við að heimsækja börnin. Við ætlum svo að líta til ykkar Hornfirðinga á Þorláksmessu og vonandi hittum við mikið af börnum þá sögðu þeir bræður að lokum.</description>
Glæsileg veggspjöld
      <description>Nemendur Heppuskóla í 8. bekk hafa síðan um miðjan október unnið að verkefni í forvörnum í samstarfi við Æskulýðs-og tómstundaráð. Árni Pétur Hilmarsson kennari við skólann og Haukur Þorvaldsson æskulýðsfulltrúi voru umsjónarmenn verkefnisins. Meðal þess sem nemendurnir fengust við var gerð veggspjalda og s.l. föstudag voru þrettán veggspjöld sýnd í skólanum og þrjú bestu veggspjöldin valinn að mati dómnefndar. Allir nemendur í 8. bekk fengu síðan viðurkenningu fyrir þátttökuna. Greinilegt var að unglingarnir höfðu lagt mikla vinnu í verkefnið og báru veggspjöldin og slagorðin þess glöggt vitni. Glæsileg vinna krakkar, til hamingju.</description>
Mikil ljósadýrð á Hornafirði
      <description>Aldrei hefur jafnmikil ljósadýrð verið á Hornafirði eins og fyrir þessi jól og greinilegt að Hornfirðingar vilja vera vel upplýstir. Mikið hefur verið lagt í skreytingar, bæði hjá einstaklingum sem og fyrirtækjum og er sumstaðar um hrein listaverk að ræða. Þessi mikla ljósadýrð léttir mikið á svartasta skammdeginu og veitir jafnt ungum sem öldnum gleði og ánægju og þeir eru margir sem fara í ljósa skoðunarferð um bæinn á kvöldin.</description>
Meira um jarðgöng
      <description>Í kynningu á framkvæmdum við jarðgöng undir Almannaskarð sem Vegagerðin hefur gefið út kemur m.a. fram að göngin verða tvíbreið og 8 m. í þvermál. Vegurinn inn í göngunum verður 6,5 m. breiður með 6,3 m. breiðu slitlagi og verður mesti langhalli 4,7%. Reiknað er með að jarðgangnagerðin taki um 8 mánuði frá upphafi sprengivinnu en að henni lokinni taka við framkvæmdir við lokastyrkingu bergsins og annan frágang.</description>
Farið út í skóg, jólatré valið og höggvið niður.
      <description>Fjöldi hornfirðinga lagði leið sína í skógræktina í Haukafelli í gær, sumir til að velja sér jólatré og höggva sjálfir aðrir til taka þátt í jólastemningunni. Veður var hið fegursta logn og  nokkurt frost. Boðið var uppá heitt kakó og kökur og jólasveinarnir Stúfur og Gáttaþefur mættu eldhressir á svæðið ásamt ýmsu hyski sem býr í Fláfjalli. 
Þetta er í fyrsta sinn sem hornfirðingum gefst kostur á að fara og velja sér jólatré í Haukafelli og fella þau sjálfir.</description>
Verður Hornafjörður heitt svæði?
      <description>Allt útlit er á að Hornafjörður verði ekki lengur talinn með ,,köldu svæðum“ landsins því núna í vikunni var byrjað að bora eftir heitu vatni í Hoffellslandi. Byrjað var að bora á stað sem heitir Arnarbæli, um 300 metrum frá Hoffellsbæjunum og er útlit á góðum árangri. Við erum að bora þarna 6-700 metra tilraunaholu og vonumst til að hitta á vatnsæð með nægjanlegu vatni fyrir hitaveitu sagði Helgi Már Pálsson.
Þarna eru líkur á nægjanlega miklu vatni, yfir 70 gráðu heitu til hitaveitu fyrir Höfn og Nes.</description>
Kiwanismenn selja jólatré
      <description>Á morgun laugardag mun Kiwanisklúbburinn Ós hefja sína árlegu sölu á jólatrjám. Að þessu sinni mun salan fara fram við húsið að Hafnarbraut 23, þar sem Tippstofa Sindra er til húsa. Að sögn Olgeirs Jóhannessonar, Kiwanisfélaga, er þetta ein af aðal fjáröflunum Kiwanisklúbbsins og öllum ágóða af sölunni er varið til líknarmála hér í sýslunni. Við verðum með söluna í gangi til jóla og vonandi seljast öll trén hjá okkur þetta árið.</description>
Línubátar með góðan afla
      <description>Árið 1999 varð Skinney-Þinganes hf til með sameiningu þriggja fyrirtækja á Höfn og er heildarframleiðsla fyrirtækisins á þessu fimm ára tímabili orðin yfir 50.000 tonn. Í morgun fögnuðu starfsmenn fyrirtækisins á Höfn því að búið væri að frysta 10.000 tonn af uppsjávarafurðum á þessu ári, en heildarframleiðslan á árinu er að nálgast 15.000 tonn, en það er örlítið minna en heildarframleiðslan var samanlagt árin 1999 og 2000.</description>
Rúmt ár liðið frá flóðunum í Hornafirði
      <description>Rúmlega eitt ár er liðið frá því að stórflóð og jökulhlaup komu í allar jökulár í Hornafirði. Árnar flæddu yfir stór svæði með miklum leirframburði og voru margar sem hafsjór yfir að líta. Til að fræðast um afleiðingar flóðanna á gróið land var leitað til Þrúðmars bónda í Miðfelli sem hefur haft umsjón með landgræðslu í sýslunni. Þrúðmar segir að ekkert hafi verið unnið að uppgræðslu á þessum svæðum því þetta grói á 2-3 árum ef það fær frið og það hafi ekki orðið landrof.</description>
Framhaldsnám í Heppuskóla
      <description>Nokkuð margir nemendur Heppuskóla eru í eða hafa lokið einingum 103 eða 203 á framhaldsskólastigi. Einn nemandi í 9. bekk Eik Aradóttir hefur tekið áfanga 103 í ensku og 103 frönsku og er núna í 203 í frönsku. Annar nemandi í 10. bekk Eva Ösp hefur tekið áfanga 103 og 203 í dönsku. Þá stunda þrír nemendur í 10. bekk, þau Gunnar Örn, Sólveig og Gísli nám í stærðfræði 103 og einnig Guðrún Fema, en hún er í 9. bekk. Töluverður fjöldi nemenda stundar einnig slíkt nám í þýsku. Þessu til viðbótar má nefna að nokkuð margir 9. bekkingar munu taka samræmd próf í vor og hefja áfanganám næsta vetur.</description>
Knattspyrna í skammdeginu
      <description>Leikmenn Sindra í 2. flokki karla tóku þátt í Íslandsmótinu innanhúss s.l. sunnudag, en leikið var á Egilsstöðum. Strákarnir léku 4 leiki og unnu einn en töpuðu þremur og enduðu í fjórða sæti í sínum riðli. 5. flokkur karla lék á laugardaginn einnig í Íslandsmótinu og var leikið á Egilsstöðum og enduðu strákarnir í þriðja sæti af 7 liðum í sínum riðli. 3. flokkur kvenna lék s.l. sunnudag á Íslandsmótinu innanhúss og var leikið á Fáskrúðsfirði, stelpurnar enduðu í neðsta sæti í sínum riðli.</description>
Ásgrímur Halldórsson einn á veiðum
      <description>Ásgrímu Halldórsson SF-250 er einn eftir á síldveiðum af skipum Skinney-Þinganess og hefur leitað síldar útaf austurlandi, en er nú á Norðfirði. Alvarlegt slys varð um borð í Ásgrími Halldórssyni í gær er skipið var á veiðum. Skipverjinn sem slasaðist var fluttur með sjúkraflugi til Reykjavíkur og er á gjörgæsludeild. 
Jóna Eðvalds SF-200 landaði síðasta farmi sínum á þessari vertíð s.l. mánudag, 380 tonnum. Hún fer nú í vélarupptekt í Hafnarfirði. Á mánudaginn var skipað út 150 tonnum af síldarflökum og 60 brettum af saltfisk í M/V Florindu.</description>
Göngin í útboð
      <description>Vegagerðin hefur boðið út gerð jarðganga undir Almannaskarð ásamt vegskálum og vegagerð. Jarðgöngin verða tvíbreyð og 1.146 m. löng, vegskálarnir verða 162 m. og  vegagerð um 4,1 km. Útboðið er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu. Verkinu skal að fullu lokið fyrir 15. júní 2005. Verkkaupi ætlar að standa fyrir vettvangsskoðun og mun hún fara fram 8. janúar n.k. Það styttist því í að framkvæmdir hefjist við gangnagerðina og spennandi verður að aka undir en ekki yfir Almannaskarð.</description>
Jólasöngur á sal
      <description>Nemendur Hafnarskóla hittust á sal í hádeginu í dag og sungu saman jólalög. Gaman var að heyra krakkana syngja hvert jólalagið á fætur öðru af mikilli innlifun og oft með miklum raddstyrk. Þetta er í annað skiptið sem krakkarnir stilla saman jólastrengina í söng því s.l föstudag voru jólalögin sungin og er stefnt að því að hittast nokkrum sinnum í viðbót á sal fram að jólum og syngja jólalög, enda fátt betra til að komast í jólaskapið en fallegur söngur.</description>
Kveikt á jólatrénu
      <description>Í gær var kveikt á jólatré Hornafjarðar við hátíðlega athöfn í Tjarnarlundi við íþróttahús. Fjöldi fólks var við athöfnina og var margt til skemmtunar. Flutt var ávarp og hugvekja, sungið og leikið. Lína Langsokkur mætti óvænt á svæðið og skemmti krökkunum og þrír galvaskir jólasveinar þeir Gluggagægir, Stekkjastaur og Kertasníkir komu í heimsókn og sungu og spjölluðu við börn sem og fullorðna. Veðrið var eins og best verður ákosið og héldu allir sælir og ánægðir heim að athöfn lokinni.</description>
Samstarf við listahátíð í Reykjavík
      <description>Listahátíð í Reykjavík verður gerð að árlegum viðburði og í tengslum við hana á að hefja samstarf við önnur sveitarfélög. Fyrsti samningurinn sem gerður verður við sveitarfélög verður undirritaður á Höfn  í dag. Þetta er samningur við Menningarráð Austurlands og Akureyrarbæ og koma fulltrúar frá þeim til að undirrita samninginn. Er hér um tímamótasamstarf að ræða og verður kynnt á fundinum hvaða erlendir listamenn munu heimsækja þessi landssvæði á komandi vori og hvaða alþjóðleg verkefni verða á vegum heimamanna.</description>
Framkvæmdir hafnar hjá Olís
      <description>Framkvæmdir við nýja afgreiðslu Olís á Höfn eru hafnar og á að ljúka í mars-apríl.
Aðalverktakar eru Geir Þorsteinsson og Hans Christensen sem sjá um breytingar á húsi því sem áður var smurstöð í eigu Olís. Aðrir verktakar eru Bragi Karlsson með pípulagnir, Ólafur Karl Karlsson múrari og Hákon Gunnarsson rafvirki. Verkið er allt unnið af heimamönnum. Haukur Sveinbjörnsson umboðsmaður Olís á Hornafirði segir að nýja afgreiðslan verði um það bil fjórum sinnum stærri en sú sem fyrir er. Skrifstofa, kaffistofa og starfsmannaaðstaða verður á efri hæð. Auk verslunar og afgreiðslu Olís verða seldar vörur frá Ellingsen.</description>
Mestu landað hjá Skinney-Þinganes
      <description>Búið er að frysta rúm 4.000 tonn af síld hjá Skinney-Þinganes á síldarvertíðinni og Skeggey hefur tekið á móti rúmum 12.000 tonnum til bræðslu. Ásgrímur Halldórsson SF-250 kom til löndunar í nótt með um 350 tonn af síld. Jóna Eðvalds SF-200 er síðan væntanleg í dag með 300 tonn. Steinunn SF-10 er hætt síldveiðum og á skipið að fara í slipp.</description>
      <alt>Hornafjarðarhöfn</alt>